Færsluflokkur: Bloggar
Hvað er málið ?
11.11.2008 | 18:51
Er það bara ég sem er ekki að fatta þessa kreppu og aðgerðir ríkisstjórnarinnar ? Mér finnst ég endalaust heyra sömu fréttirnar,- ráðherra telur að nú þegar þurfi að grípa til aðgerða til að styðja við heimilin í landinu - þetta er búið að endurtaka í svotil hverjum þeim fréttatíma sem ég hlusta á !! Halló,- hvernig væri að framkvæma en ekki bara tala ? ( mér sýnist þó af öllu þessu aðgerðarleysi að stjórnarsamstarfið hangi nú lyginni einni saman). Ég er amk ekki farin að heyra af neinum aðgerðum sem skipta flest fólk máli. Jú, það er hægt að lengja í myntkörfulánunum. Ég hef ekki heyrt af því að hægt sé að frysta t.d. íbúðarlán,- nema þú sért kominn í vanskil. Ég held að flestum fjölskyldum kæmi það best að grípa til fyrirbyggjandi ráðstafanna,- frysta lán til að klára önnur, greiða niður skólamáltíðir, lækkun dagvistunargjalda, lækkun fasteignagjalda, hækkun vaxtabóta og barnabóta. Núna ætti ríkið og sveitarfélögin að keyra út velferðina,- efla atvinnu og já...því miður fara í hallarekstur. Það er bara þannig (n.b. að mínu mati).
Og afhvurju erum við alltaf að fá fréttirnar frá útlöndum,- lán frá Póllandi ( og Geiri gapti bara), umsókn í alþjóðagjaldeyrissjóðinn ekki komin ( og Geiri gapti bara) o.s.frv.
Líklega er lýsandi fyrir íslenska pólitík hvernig þeir sem ættu að vera samherjar vinna gegn hver öðrum,- sbr. Bjarna Harðar.
Í hvaða sandkassa erum við eiginlega ???
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
stigbreyting !!
9.11.2008 | 23:15
Hlustaði á handboltakappa hjá FH- við höfðum bara meira gaman af þessu ....sagði hann,- meira gaman !! mér finnst að hann hefði frekar átt að segja,- það var skemmtilegra hjá okkur. Hlustaði líka á nokkra fyrirlestra á ráðstefnu á föstudag og laugardag og tók eftir þessu notkunarleysi á miðstigi lýsingarorða. Þeim þykir meira vænt um.....betra væri að segja þeim þykir vænna um. Ég varð meira dugleg......auðvitað á að segja duglegri. Þetta eru líkast til áhrif úr ensku....more this and that !!
Mér þætti betra ( gott-betra-best) og réttara ( rétt-réttara-réttast) að nota hina íslensku stigbreytingu í talmáli okkar !! ( það yrði svo miklu meira gaman !!! )
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Núna vitið þið...
7.11.2008 | 09:26
...hvað ég var að gera í Póllandi um daginn ;) Sjarmera Pólverjana svoldið....
Takk kæru Pólverjar
Pólverjar munu lána Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Blessuð börnin !!
4.11.2008 | 13:15
Lufsaðist hálfslöpp heima á laugardagsmorgun. Dóttir mín 8 ára rak augun í gráu hárin í vöngunum ( þessi þrjú !!) og innti mig eftir því hvort ekki væri kominn tími á litun. Ég sagði henni ( algjörlega í gríni, trúið mér) að nú ætlaði ég að hætta að lita á mér hárið. "Viltu ekki vera sæt ? mamma" sagði dóttirin og sonurinn 11 ára tók andköf. " Er ég ekki alltaf sæt ?" sagði ég auðvitað ( full sjálfstrausts),- börnin mín litu hvort á annað......."jú, jú,- þegar þú ert máluð " sögðu þau í kór.
%&/()=)(//&$#$&/&(
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hakkararnir....
3.11.2008 | 21:14
Ég var í svo bráðskemmtilegum tölvuleik.....örugglega góð útgáfa af Sims eða e-hvað. Þar dundaði ég mér við að fara borð úr borð,- koma minni kellingu upp karli, afkomendum og vinum. Kellingin menntaðist líka og flutti,- og flutti aftur. Fínn leikur og skemmtileg borð ( misskemmtileg þó, e-hvað bras var nú stundum ). Við vorum svoldið mörg sem vorum í þessum leik,- svona rúmlega 300.000 ( ekkert á við Eve-online semsagt). Síðan komst hakkari í leikinn,- smyglaði sér bakdyramegin inn og við varla tókum eftir honum. Héldum að hann væri með í okkar leik,- og honum gekk fjandi vel. Æddi borð úr borði. Og mér fór að ganga betur, fór upp borðin ( ekki eins hratt og hakkarinn þó) keypti hús, bíl, flatskjá, ferðaðist um og bauðst jafnvel hlutabréf til kaups ( á lánum frá hakkaranum). En síðan fór tölvan að hægja á sér,- var minnið e-hvað að gefa sig ? Og skyndilega, þegar ég hélt að hún væri komin í lag blessunin,- þá hrundi hún. Algjörlega,- reyndi að rístarta....og fattaði þá að hakkarinn var HAKKARI. Hann var aldrei með okkur í leiknum, heldur mergsaug okkur, blekkti okkur með fagurgala og fé ( sem var síðan ekki til í alvörunni). Hans leikur byggðist upp á því að notfæra sér okkar leik, þannig komst hann svona hratt upp borðin. Hann náði þó að selja hluta af sínum leik áður en tölvan hans hrundi en ekki ég eða flest hinna 300.000. Og við hrundum niður borðin,- ef það tekst að rístarta tölvunni aftur....án tenginga við server í Evrópu....þá verð ég örugglega á mínus borði !!
Nema ég finni mér bara annan leik ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Einu sinni var....
31.10.2008 | 22:52
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Á skíðum skemmti ég mér....tralalala
29.10.2008 | 20:24
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heim...heim og heim...
28.10.2008 | 21:25
Komin heim eftir gagnlega starfs- og skemmtidvöl í höfuðhreppnum. Starfsdvölinni eyddi ég á frábærri ráðstefnu,- Listin að læra og það var svosem alveg skemmtidvöl líka. Mér finnst nefnilega skemmtilegt í vinnunni minni ;) en síðan tók enn meiri skemmtun við,- að hitta barnabörnin,- að hitta góða vini ( og leiðinlegan kall sbr. fyrri færslu),- að hitta barnabörnin,- að hitta frumburðinn og tengdadótturina,- að hitta barnabörnin,- að passa barnabörnin,- og að hitta Steinvöru sys og familí og Lúkas afa og frú og að hitta barnabörnin ;)
Það var svo mikill snjór þegar við komum heim og ég hélt að forsjálnin væri hreinlega að verki þegar dyrabjallan glumdi skömmu síðar og pósturinn Páll var mættur með skíðin hans Boga alla leið frá Þýskalandi. Slengdi mér beint á netið til að athuga hvunær fjallið opnar.......súrt... ekki fyrr en eftir mánuð.
Förum þá bara á Dalvík !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bankastarfsmenn ??
26.10.2008 | 19:42
Fór með manni og vinum út að borða í gær. Það er svosem ekki í frásögur færandi ( nema að við förum mjög sjaldan út,- og fengum þennan fína mat á veitingastaðnum Gullfossi ) nema hvað...á eftir settumst við inn á Torvaldssen, fengum okkur rauðvín og bjór og tjöttuðum. Þar sem við sitjum í mesta sakleysi þá kemur til okkar maður með bægslagangi miklum og spyr okkur við hvað við störfum. Við segjum eins og er að við séum kennari, skólastýra, flugumferðarstjóri og sjómaður. Gaurinn ranghvolfdi augunum og trúði okkur greinilega ekki. Fór í burt, en kom fljótlega aftur með sömu spurningu, við svöruðum enn á sama hátt en þá sagði hann....þið eruð víst bankastarfsmenn. Við hlógum nú bara að honum ( og ég var næstum búin að segja...nú komst upp um okkur...við sáum um sjóð 9 )en því hefðum við betur sleppt því hann barði í borðið hjá okkur svo rauðvín og bjór skvettust úr glösum og öskraði á okkur. Það er nú lámark að fólk viðurkenni hvað það gerir....þið eruð víst bankastarfsmenn. Ekkert þýddi að rökræða við kauða en hann kom sér þó í burtu...fussandi og sveiandi.
Þórhildur Helga bankastarfsmaður.......í gleðibankanum ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fínt málþing
24.10.2008 | 22:28
Var í gær og dag á fínu málþingi hjá Menntasviði Háskóla Íslands ( sem ku vera fyrrum Kennaraháskóli Íslands),- Listin að læra var yfirskrift þingsins og voru mörg góð erindi um listir í kennslu og kennslu sem list ;) Þorgerður Katrín ráðfreyja menntamála ávarpaði þingið og ég er full vonar fyrir hönd skólakerfisins eftir að hún sagði : ...ef við stjórnmálamenn þorum að forgangsraða í þágu menntunar...
Þið verðið bara að þora.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)