Blessuð börnin !!

Lufsaðist hálfslöpp heima á laugardagsmorgun.  Dóttir mín 8 ára rak augun í gráu hárin í vöngunum ( þessi þrjú !!) og innti mig eftir því hvort ekki væri kominn tími á litun.  Ég sagði henni ( algjörlega í gríni, trúið mér) að nú ætlaði ég að hætta að lita á mér hárið.  "Viltu ekki vera sæt ? mamma" sagði dóttirin og sonurinn 11 ára tók andköf.  " Er ég ekki alltaf sæt ?"  sagði ég auðvitað ( full sjálfstrausts),- börnin mín litu hvort á annað......."jú, jú,- þegar þú ert máluð " sögðu þau í kór.

%&/()=)(//&$#$&/&(


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jahá............ bara þrjú grá hár ??? Lærðiru ekki að telja hér einu sinni??????? Kannske búin að gleyma því. En gott hjá krökkunum "Þegar þú ert máluð" Eru þau á samningi hjá einhverju "málningarfyrirtæki"?? Kv.Guðný sys

Guðný sys (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 17:02

2 identicon

Hehe já stundum á maður ekki að spyrja, hef lent í þessari umræðu hér um gráu hárin. Kveðja að vestan.

Tóta (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 17:59

3 identicon

HA HA HA HA HA þessi blessuðu börn..

Ragna rugludolla (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 19:08

4 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

þrjú hár? kjaftæði ég er orðil alveg gráhærð og stolt af því

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 4.11.2008 kl. 21:58

5 identicon

hihihi þau eru yndisleg blessuðu börnin..

Hafdís Rut (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband