Tómlegt...

...á heimilinu núna þegar gestirnir eru farnir Blush  Þetta er búin að vera dásamleg páskahátíð.  Steinvör systir var semsagt í heimsókn með mann sinn og dætur.  Við erum búin að eta á oss gat af gúrmet máltíðum og páskaeggjum ( eins og Kolfreyjustaðarslektinu er von og vísa...erum ekki dætur föðurs okkar fyrir ekki neitt Grin) sötra á rauðvíni og auðvitað smá Dommi og góðu kaffi.  Auðvitað fórum við í fjallið á skíði og sleða og ég fór með Kristínu Jónu í hennar fyrstu skíðaferð !! Trivialið fékk líka góðar undirtektir og Lúkas Björn malaði okkur fullorðna fólkið ( aldrei þessu vant, eða þannig....Tounge). Það var einnig farið í sund og hjónakornin fóru á Fló á skinni í leikhúsinu og ég gætti dætranna á meðan.

Svona eiga páskar að vera !!

Elsku, hjartans Patrekur Jóhann, barnabarnið mitt á tveggja ára afmæli í dag Wizard


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með barnabarnið, 2ja ára voða líður tíminn hratt.

Átti einmitt 6 ára brúðkaupsafmæli í gær..

Hafdís Rut (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 17:19

2 identicon

Gleðilega páskarest. Vinnudagur á morgun! kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband