Tómlegt...
24.3.2008 | 14:26
...á heimilinu núna þegar gestirnir eru farnir Þetta er búin að vera dásamleg páskahátíð. Steinvör systir var semsagt í heimsókn með mann sinn og dætur. Við erum búin að eta á oss gat af gúrmet máltíðum og páskaeggjum ( eins og Kolfreyjustaðarslektinu er von og vísa...erum ekki dætur föðurs okkar fyrir ekki neitt ) sötra á rauðvíni og auðvitað smá Dommi og góðu kaffi. Auðvitað fórum við í fjallið á skíði og sleða og ég fór með Kristínu Jónu í hennar fyrstu skíðaferð !! Trivialið fékk líka góðar undirtektir og Lúkas Björn malaði okkur fullorðna fólkið ( aldrei þessu vant, eða þannig....). Það var einnig farið í sund og hjónakornin fóru á Fló á skinni í leikhúsinu og ég gætti dætranna á meðan.
Svona eiga páskar að vera !!
Elsku, hjartans Patrekur Jóhann, barnabarnið mitt á tveggja ára afmæli í dag
Athugasemdir
Til hamingju með barnabarnið, 2ja ára voða líður tíminn hratt.
Átti einmitt 6 ára brúðkaupsafmæli í gær..
Hafdís Rut (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 17:19
Gleðilega páskarest. Vinnudagur á morgun! kv gb
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 18:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.