Með ólíkindum...

...hve margir líta loftbyssur léttúðugum augum.  Ég þekki fleiri en eitt foreldri sem hefur keypt og smyglað inn loftbyssum fyrir börnin sín.  Þessi foreldri eru hið vænsta og yndislegasta fólk og telja sig bara vera góð við börnin sín, eins og þau átti sig alls ekki á því að þetta eru ekki leikföng,- amk. eru þetta lífshættuleg leikföng.  Ég get heldur ekki ímyndað mér hvernig viðkomandi foreldrum myndi líða ef barnið þeirra skaðaði aðra manneskju með loftbyssunni sem smyglað var af foreldrinu !!
mbl.is Fékk loftbyssuskot í sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera amma er unaður !!

Allavegana þegar kona á eins yndisleg barnabörn og ég ;)  Þórhildur Lotta er reyndar flogin heim til sín með mömmu sinni en ég, afinn og frændsystkinin fáum að dekstra við Patrek Jóhann.  Hann er 2ja ára og akkúrat á þvílíku máltökutímabilinu að það þarf heldur betur að gæta sín.  Ég hef svona 3var knúsað hann og kallað Patta púka.....og nú gengur drengurinn um allt og segir "Patti púki".  Bojafi hoppa trambó er líka mikið notað orðasamband þessa dagana,- og hoppar afinn í gleði sinni á trambó daginn langan ( ef hann væri svona viljugur að gera allt sem ég bið hann um ;).  Sælan verður áfram í nokkra daga en síðan ætlar Bojafi að aka með afadrenginn sinn á heimaslóðir og taka börnin sín með ( skellir sér á einn fótboltaleik í leiðinni ;) og þá get ég unnið.....allan sólarhringinn...rétt á meðan.

P4180061


Króksmót

Var að koma heim af bráðskemmtilegu Króksmóti.  Fengum allar tegundir af veðri nema rigningu og snjókomu.  Það var aldeilis kominn tími til að fara í útilegu með hinn fína og flotta tjaldvagn okkar.  Hann hefur lítið verið hreyfður í sumar, (vinir okkar hafa þó fengið hann lánaðan 2var).  En núna var það semsagt Langamýrargengið sem var í vagninum sínum og eitt barnabarn að auki.  En við vorum svo lukkuleg að fá hann Patrek Jóhann lánaðan.  Þvílík sæla að vera amma og afi.  Geta dekstrað við barnið og þurfa ekki að hafa áhyggjur af afleiðingunum ( það verður bara foreldranna höfuðverkur;).  Og frændsystkinin keppast um að gæta drengsins, svæfa og skipta á bleyju.  Lúkas var að keppa í fótboltanum og gekk með mestu ágætum.  Við hittum líka fullt af góðum vinum að austan og vestan af Blönduósi.  Tjölduðum við hliðina á Evu og Kára ( en það höfum við yfirleitt gert ef við tjöldum á Króksmóti) og áttum góðar stundir með þeim.  Nú er bara tjill og sæla framundan sem oft áður....Bogi kominn heim í frítúr ;)

Orðsnilld !!

Börnin mín eru alþekkt fyrir orðsnilld sína,- eins og flest börn náttúrulega.

 rostungurKolfreyja Sól þekkir seli,- og silung,- og hefur búið fyrir austan þar sem oft er sagt selungur um þann feiknagóða fisk að flámælskum sið !!  Hún sá forsíðu fréttablaðsins í gær og kom til mín hróðug og sagði " sko, þarna er selungur " en þar var þá þessi fíni rostungur ;)

 

 

 

 

 

 

Þetta minnti mig á frumburð minn, Kjartan Þór, sem fór með mér í húsdýragarðinn og sá þar lömb, 206-0698_IMGkálfa og hænuunga,- þegar við komum í geitahúsin þá hrópaði hann upp yfir sig "nei, sko geitungana" og átti þá auðvitað við kiðlingana,(- sem Kolfreyja hlýtur að kalla keðlinga ;)


Spennandi !!

Afskaplega spennandi verkefni framundan.  Verkefni sem krefst áræðni, hugrekkis, viljastyrks, þrautseigju, þvermóðsku og líkamlegs atgerfis.   Hef verið að kvenna mig upp í þetta verkefni og nú verður ekki undankomu auðið.  Í fyrramálið gerist það..........sólarhringnum á Löngumýrinni verður snúið við !! 

og í kveld...

...var líka ótrúlega rólegt,- notalegt og gott andrúmsloft á frábærum sparitónleikum á Akureyrarvelli. Yndislega gaman að fara þangað með börnum og góðum vinum og njóta þess að vera til.  Flugeldasýningin í lokin algjörlega mögnuð. 
mbl.is Rólegheit á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gaman

Mikið var gaman að fá þá dásemdargesti Hildigunni og Þorstein son hennar.  Við erum búin að tjilla og liggja í sólbaði, rölta í bænum, sötra rauðvín og hafa gaman af lífinu.  Í gærkveldi fórum við vinkonurnar út að borða á hinn magnaða veitingastað Friðrik V http://fridrikv.is/  og vorum nú ekki sviknar af matnum, umhverfinu og þjónustunni.  Nammi, namm....

Gestirnir flugu svo í dag og nú tjillum við bara ég og börnin,- sól og blíða framundan, tívolí og ég veit ekki hvað.  Um að gera að njóta síðustu sumarleyfisdagana að sinni í botn.....


Sól og aftur sól

Hrein dásemd að vera til.  Sól og blíða, góðir vinir í heimsókn, grillaður humar og kælt hvítvín.  Tóm gleði, sæla og tjill ;)

Frábært

Duglegir strákarnir í Fjarðabyggð,- og gaman að hinum gamalreynda markahrók ;)  Villa sjálfum Dennabróður.  Til lukku Fjarðabyggð !!!
mbl.is Óvæntur sigur Fjarðabyggðar í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Togari !!

Maðurinn minn hefur í þónokkur ár stundað sjóinn,- langoftast á frystitogurum en e-hvað þó farið á togara.  Koflreyja Sól átta ára dóttir okkar var í dag að spá í hvað pabbi hennar gerði um borð í nýja skipinu sínu.  Hann er badermaður tjáði ég henni,- hmmm...sagði sú stutta, en hefur hann ekki verið e-hvað annað á sjónum....jú,jú, sagði ég...hann hefur verið vélstjóri,- nú, sagði sú stutta,- en var hann ekki e-hvertímann togari ?  

2170


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband