Gaman

Mikið var gaman að fá þá dásemdargesti Hildigunni og Þorstein son hennar.  Við erum búin að tjilla og liggja í sólbaði, rölta í bænum, sötra rauðvín og hafa gaman af lífinu.  Í gærkveldi fórum við vinkonurnar út að borða á hinn magnaða veitingastað Friðrik V http://fridrikv.is/  og vorum nú ekki sviknar af matnum, umhverfinu og þjónustunni.  Nammi, namm....

Gestirnir flugu svo í dag og nú tjillum við bara ég og börnin,- sól og blíða framundan, tívolí og ég veit ekki hvað.  Um að gera að njóta síðustu sumarleyfisdagana að sinni í botn.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Vá hef sko borðað þar ...æði.  Hafðu það gott.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 31.7.2008 kl. 22:06

2 identicon

Og fyrir hönd Sólveigar þakka ég þig og vinkonan þín fyrir skemmtilegt spjall á mið. kvöld

Viktor Mar Bonilla (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 00:44

3 identicon

Þú hefur greinilega haft í nægu að snúast undanfarið nafna! Því miður fer jú að síga á seinni hluta sumarleyfis...daman mín á leið á skautanámskeið eftir helgi og mér finnst það hljóma voða HAUST-lega!

Helga S (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 02:09

4 identicon

Já það er sko gott að vera til!  Væri til í að koma á Akureyri um helgina en Siggi er á vöktum um helgina svo ég verð að láta skreppitúr á Neistaflug nægja (og að sjálfsögðu svona eins og eitt gott ball)

Tinna Hrönn (IP-tala skráð) 1.8.2008 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband