30. júní.....

...og ég er frosin inn að beini eftir útivist helgarinnar.  Kolfreyja Sól keppti á Landsbankamótinu á Sauðárkrók og auðvitað fer kona og hvetur stúlkuna sína, þrátt fyrir gráma í fjöllum, snjó á Öxnadalsheiði og rok....og rok....og enn meira rok á Sauðárkrók.  Stóð krókloppin á línunni,- reyndi að garga mér til hita,- þéttinnpökkuð í þrennar flíspeysur, vindgalla, lopavettlinga og húfu.  Betur klædd en í Hlíðarfjalli í vetur ;)  Herre Gud,- takk fyrir að gista á Blönduósi en ekki noprast í tjaldi í þessum kulda. Fór Þverárfjall sex sinnum en sá engan ísbjörn.....ferlega fúlt ;)

Mótið var frábært,- stúlkurnar skemmtu sér drottningarlega og að fylgjast með 7.flokk slær allar meistarakeppnir út ;)  .  Keppendur fara um völlinn eins og amöbur,- þetta er svona flokkafótbolti nokkurskonar.  Síðan fara sumir kannske í parís,- ja, eða að spjalla við foreldra sína og svo er heldur ekkert svo nauið hvort það eru 6 eða 11 í hvoru liði.  Dómarinn missir sig stundum úr hlátri og allir hafa stórgaman af.  En líka alveg ótrúlega flott að sjá seigluna hjá þessum 6-8 ára stelpum sem efldust við hvern leik,- og flokkafótboltinn var smá saman að breytast í sendingar og svoleiðis e-hvað sem ég hef ekki hundsvit á.  Sama hvernig leikar fóru eða hversu mikið vindurinn blés,- alltaf hamingjusvipur á stúlkunum og gleðin allsráðandi. 

Lá í heitu baði hjá tengdó í 2 klt í gærkveldi,- fór til vinkonu minnar og fékk kaffi með yljara út í.....er samt enn hálfkalt !!!

Verð að ná í mig hita fyrir fótboltamótið hjá 5. flokk hér á Akureyri í vikunni.


Hvurnig má annað gera....

...hjá vinnuþrælandi Íslendingum ;)   og ekki hefur vinnuþrælkunin minnkað með vaxandi verðbólgu og vaxtahækkunum.  Og kannske hefur þetta verið hjúkrunarfræðingur í vaktavinnu....eða flugumferðarstjóri ( nei, líklega ekki......þeir ráða sér fólk til sláttar ;)

Ég sló í fyrra nokkrum sinnum með brjáluðu bensínorfi,- það var nú sjón að sjá mig munda það, og ég upplifði sláttinn sem hina mestu þolraun og þóttist góð.  Nú er búið að fjárfesta í lítilli, nettri rafmagnsslátturvél, slátturinn hættur að vera þolraun og mér líður svoldið eins og ég sé að ryksuga ;)  trítlandi um garðinn, sveiflandi snúrunni.  Nágrannakonan hélt að hljóðið frá vélinni væri frá hárblásara..............

1412-8991

 

 


mbl.is Garðsláttur á ókristilegum tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstakt andrúmsloft....

....á vinnustaðnum mínum þessa dagana.  Yfirleitt eru nefnilega yfir 600 manneskjur á þessum vinnustað og mikið líf og fjör.  Í gær var ég alein í vinnunni,- og, já, það var óneitanlega sérstakt andrúmsloft.  Það eru semsagt allir komnir í sumarfrí nema ég ;), en það líður að mínu fríi.  Mjög gott að vera svona alein í vinnunni og gat komið ótrúlega miklu í verk, tiltekt í tölvunni, hillum og skápum......og byrjuð á vinnuskýrslum næsta skólaárs Cool   Fer með mjög góðri samvisku í sumarfrí allan júlí Halo

Hefði aldrei trúað því....

að stærsta sys væri svona mikið chiken

Tek undir...

...áskorun Siggu frænku.  Guðný stóra sys...farðu að blogga ;)

fjölskyldan KolfreyjustaðGuðný er hér við hlið elsku mömmu. Nr 2 frá hægri. 

Síðan koma Imba, Klimmi, Steinvör, ég og pabbi.


Sigga frænka

komin á Moggabloggið !!  Kíkið á hana........

Jónsmessan í Kjarnaskóg

Glimrandi gaman inn í Kjarnaskógi í kveld.  Furðuverur á sveimi,- föndur úr náttúruefnum, kúaspjall og ég veit ekki hvað.  Grillaðar pulsur hjá Norræna félaginu, getraunir og rómantískt horn, heitt kakó og kringlur. 

Heiti potturinn á Síló á eftir................dásemdin ein.

http://akureyri.is/frettir/nr/11800


Letilíf

Eftir svona dásemdarkveld eins og í fyrrakveld þar sem matarborðið svignaði undan kræsinum ( humar, hreindýr og súkkulaðiberjaís) þá var ekki um annað að ræða í gær en bara að tjilla sér og sínum og hafa það huggulegt.  Við Lúkas góndum á leik Ítala og Spánverja og liðið sem við héldum með vann.  Þetta verður nú erfitt í framhaldinu að finna út með hvaða liði við eigum að halda því Tyrkjir,Þjóðverjar og Spánverjar eru allir komnir áfram............en ætli við setjum þýskarana ekki í forgang svona vegna tengdadótturinnar sem er jú frá Þýskalandi. 

Kolfreyja Sól er farin með Dagrúnu Ingu í Jónsmessuleiki inni í Kjarnaskóg og verður þar í allan heila dag.  Ef þetta verður jafnflott og í fyrra þá er ljóst að henni kemur ekki til með að leiðast ;)

VöluspáÞessi mynd er tekin fyrir ári síðan.  Hér er Kolfreyja að gera Völuspá.

 


Hreindýr

Slatti af hreindýragúllasi.- sætar kartöflur, sveppir, villijurtakrydd, rjómi, maldonsalit,rauðvín.

Rauðvíni helllt yfir hreindýrakjöt + villikrydd.  Látið liggja í hálfan sólarhring. 

 Sætar kartöflur+ sveppir grillað  með olíu og salti. 

Sósa gerð úr soði af hreindýri og rjóma+ villikryddi+lambakraft. 

Hreindýrið svissað á pönnu ;)

Salat úr babylaufi+ tómötum+ fetaosti.

Boðið upp á ristaðar furuhnetur, fetaost og rifinn parmasan.

Nammi, namm.

 Eftirréttur; bláber+súkkulaðirúsínur brædd í örbylgju.......borið fram með ís. 

Heitur pottur, tangini, góðir vinir og alles........................

 

svona á lífið að vera ;)

happy_girl_jumping_1

 

Takk takk elsku Ólína og fylgifiskar.............


Hatturinn góði

20080610 09575220080610 73Regnhatturinn kom í góðar þarfir í kanóróðri í Noregi. Hann á líka örugglega eftir að koma í góðar þarfir hér heima,- líklega þegar ég held suður á land ;)

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband