2008

Þrátt fyrir kreppu.....þrátt fyrir jarðskjálfta...þrátt fyrir ísbjarnarblús.....þrátt fyrir survævor í Noregi....þrátt fyrir Danmerkur/Póllandsferð.....þrátt fyrir frábæra útilegu í Fjörður....þrátt fyrir dásamlegt dingl í Hafnarfirði....þrátt fyrir allt !!

þá verður mér árið 2008 alltaf minnistæðast fyrir það að í apríl það ár dó hún mamma mín, Þórhildur,- og í maí það ár fæddist hún sonardóttir mín,Þórhildur Lotta. 

PB210129ég og mamma


Dósin

Skelltum okkur á Dósina í dag. Altsvo ekki bjórdósina eða makkintosdósina heldur á Blönduós,- sem er í slangri þar innfæddra kallaður Dósin ( því Blönduós er ansi oft borið fram Blön´dós).Tengdó voru með þvílíku jólaveisluna að unun var. Graflax, peruterta,súkkulaðiterta, brauðterta a´la Imma amma ( skonsur með rækjusalati og hangiketi )o.fl. o.fl. Hittum náttúrulega hele familien,- tvo bræður Boga þá Kalla og Jón Inga og Sylvíu systur Boga, Helgu mágkonu og Tótu litlu frænku.Og auðvitað elsku bestu Immu ömmu. Tengdaforeldrar mínir áttu fjörutíu ára brúðkaupsafmæli í dag. Rúbin,- takk fyrir. Við Sylvía mágkona erum að leita að 40 kílóa rúbínstein,- látið vita ef þið hafið svoleiðis í fórum ykkar ;)

Rubin_Madagaskar

 


tíhí

Það er sko ekki opið lengur.  Við familían geystumst á skíði um hádegið, renndum okkur nokkrar ferðir,- og síðan byrjaði að blása......og blása.  Fyrst var stólalyftunni lokað svo við skíðuðum í Hólabrautinni, þar fór líka allt að blása og við upplifðum okkur sem algjörar hetjur að halda velli og fjúka bara ekki út í Hrísey.  En við kunnum svosem að standa keik þó á móti blási ;)

Að lokum var búið að loka Hólabraut og þá var ekki annað að gera en að fjúka niður í bíl og halda heim.  Innanbæjar er bara blankalogn ;)


mbl.is Opið í Hlíðarfjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólakveðja

 

Gleðileg jól,

hug þínum friðsæla færi

fagnaðar ylgeislinn skæri.

Gleðileg jól 

 

jolamynd2006_400


Glæsilegt !!!

Svona á að vinna hlutina.  Með sáttahug og skynsemi.
mbl.is Ólafur og Dorrit buðu mótmælendum upp á kaffi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jahá

Í hitteðfyrra lánaði ég puttaling frá Englandi 5000 krónur og auðvitað fékk hann far frá Öxnadalsheiði til Reykjavíkur.  Hann fékk reikningsnúmerið mitt......týndi því ábyggilega og finnur það eftir nokkur ár.  Er það ekki annars ?
mbl.is Betra seint ...
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrift

Ég olli stórhættu í umferðinni um daginn,- ástæðan var sú að ég var í hláturskasti. 

Ég var á leið í leikhús með Kolfreyju Sól og Emblu vinkonu hennar.  Við vorum að fara á jólaleikrit.  Þær voru mjög uppteknar af því hvað þær hefðu fengið í skólinn frá jólasveininum.  Þá fór Embla að ræða um skrift jólasveinsins.  "Veistu Kolfreyja,- hann Stekkjastaur kann sko ekki að skrifa,- hann skrifar rosalega illa.  Hann skrifar bara blokkskrift og snéri E-inu öfugt og b-inu, skrifar bara ótrúlega illa."  Kolfreyja varð yfir sig hneyksluð, en fór að rifja upp að hún hefði eimitt e-hvertímann fengið bréf frá jólasveini sem skrifaði allt kolvitlaust.  " Já,- en Giljagaur, veistu...veistu" sagði Embla " vinkona mín fékk bréf frá honum og hann skrifar sko tengiskrift,- rosa flott"...........

svona voru umræðurnar á leið í leikhúsið,- hver skyldi kenna þessum jólasveinum að skrifa,- skyldi Giljagaur vera eldri fyrst hann skrifar svona vel....o.s.frv.  ég beið bara eftir því að þær færu að ræða hvort e-hver jólansveinanna væri lesblindur ;) 

vef-j%C3%B3lasveinn72


Löt

hef verið svoldið löt á blogginu undanfarið.  Bæði hefur snjáldurskinnan tekið þann tíma sem fór kannske í bloggið og svo er ég bara búin að vera hundlasin.  Lá heima á þri-mi og fi en dreif mig á vinnu á föstudag.  Ekki að ég væri orðin heil heilsu....heldur stóð svo margt fyrir dyrum hjá börnunum um helgina og mér fannst út úr kú að vera heima veik á föstudag og síðan á fullu með börnunum um helgina.  En mér var nær ( ekki brók)....fór reyndar á laugardeginum á leikritið Lápur og Skrápur með Kolfreyju Sól og vinkonu hennar ( þar sem Lúkas tók piparkökubakstur hjá vini fram yfir okkur) en lá síðan eins og skata það sem eftir var dags.  Á sunnudeginum skrölti ég á aðventuhátíð sunnudagaskólans þar sem Kolfreyja söng með barnakór kirkjunnar og kór Lundarskóla söng einnig.  Meira gerði ég ekki þann daginn.....punktur og basta takk fyrir.  Í stað þess að skeiða kát og glöð út á Þelamörk að höggva jólatré ( ekki mann og annan) og fara síðan að syngja jólin inn í Akureyrarkirkju eins og ætlunin var þá lá ég hreinlega eins og undin tuska og orkaði ekki að hreyfa legg né lið.  Þrátt fyrir misgáfulega ráð frá ættingjum og vinum á snjáldurskinnu ( sem ég hef auðvitað öll prófað), sólhattaát, hóstamikstúru, sítrónute og ég veit ekki hvað þá er ég enn hundslöpp.  Kannske kökurnar sem ég fékk á kökufundi skólastjóra í dag hressi mig við.  Bind amk. vonir við það að vera orðin þokkaleg fyrir jól ;)

sick


Sjálfgefið

Ég hef skoðað nokkur blogg í tengslum við þessa frétt og sé að margir líta svo á að Ingibjörg sé að hóta Sjálfstæðisflokknum.  Ég er alls ekki á sama máli. Mér finnst þetta alls ekki vera hótun,- heldur eingöngu bent á augljósar staðreyndir.  Mér finnst það svo borðleggjandi að ef að flokkarinir eru ekki samstíga í þessu risastóra máli,- (sem er komið inn á borð hvort sem flokkarnir vildu eður ei) þá springur stjórnin.  Rétt eins og hjá hjónum sem  þurfa að flytja ( t.d. vegna kreppunnar og afborganna o.s.frv.) en geta ekki komið sér saman um hvert hlýtur skilnaður að vera það eina í stöðinni.  Það er engin hótun,- bara bláköld staðreynd !!!

Ég vil ekki líta á hreinskilni Ingibjargar sem hótun,- flott hjá henni að segja hlutina eins og þeir blasa við.  Er það ekki það sem hefur verið beðið um.  Hreinskilni í pólitíkina og hætta að fara alltaf í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan graut.

 


mbl.is Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dásamlegt vetrarveður !!

Yndislega fallegt úti núna.  Algjör stilla, smá frost og heiður himinn.  Birtan ljós-blá-grá.  Ég og börnin mín ætlum að jólast alla helgina.  Jólaleikrit í dag, aðventuhátíð sunnudagaskólans í fyrramálið (þar sem dóttir mín syngur Happy;), höggvum okkur jólatré eftir hádegi og förum síðan að syngja inn jólin í Akureyrarkirkju.  Þetta verður dásamlegt, rétt eins og veðrið !!

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband