Formlega sem óformlega...

...eru jólin búin hjá mér.  Pakkaði öllu jólaskrauti niður á föstudagskveldið,- aðventukassi,- skrautkassi og jólatréskassi.  Það kæmi mér reyndar samt ekki á óvart þó ég ætti eftir að detta um jólastyttu e-hversstaðar.  Dóttir mín var svo afskaplega duglega að skreyta allt húsið að ég fann meira að segja eina styttu inn í þvottahúsi ;)   (auðvitað eiga jólin að vera allsstaðar).  Hún var reyndar alveg gapandi á föstudagsmorguninn þegar hún heyrði fréttir kl. 7:30 og það voru fréttir frá Betlemhem.  Er Betlehem til í alvöru ?  En þeir heppnir sem eiga heima þar ? ( sér hvur er nú heppnin) Síðan spurði hún, afhverju drepa þeir börn,- eða annað fólk?  Vill forsetinn í Ísrael þetta ?  Það er nú ekki alveg það auðveldasta sem kona gerir að skýra út grimmd heimsins í morgunsárið.....er gerði mitt besta !! Sem var örugglega ekki nógu gott,- ég skil það nefnilega ekki heldur !!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband