Langeygð

Ég er að verða svoldið langeygð eftir fréttum í þessum gengismálum.  Í upphafi gengishrapsins voru fréttir margoft á dag með hinum ýmsu búmmertum,- Þorgerður Katrín baunaði á Davíð sem baunaði á.....og svo framvegis.  Og dag eftir dag héldu skandala fréttirnar áfram,- Glitnir fallinn,- Landsbankinn fallinn, Kaupþing fallið !!!  Endalausir fréttafundir Geira og Bjögga og Kastljósið undirlagt í efnahagsmálaumræðu !!   Nú er búið að blása svo í konu stórfréttir daglega að ég verð stressuð í svona fréttaleysi !!  Svei mér þá það væri nú bara skárra að fá slæma frétt úr fjármálalífinu en enga.

Búmmertu takk,- fyrir geðheilsu mína  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja góða. Fréttir frá Akureyri í 10fréttum í kvöld. Endalausar áfengisauglýsingar allsstaðar á Akureyri!! Jahérnahér, hver hefur efni á svoleiðis núna. Kannske þeir sem eiga vínkjallara?? en ekki eru það við. Betra að elta áfengisauglýsendur en peninga og íslandsþjófa. Ætli það séu til peningar til að reka lögreglu í öðru en vernda aðalglæp.....  Úps, hugsaði óvart upphátt á tölvuna.. Kv. Guðný sys

Guðný sys (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband