Kjarnaskógur

Leti gærdagsins entist nú ekki allan daginn.  Helga svilkona kom í heimsókn og síðan kom Inga og dró okkur með í góðan göngutúr inn í Kjarnaskógi.  Þannig að það var ekki um annað að ræða en að slengja sér úr náttbuxunum og í göngufötin.  Síðan sem betur fer sá Inga aumur á mér og Kolfreyju ( hún veit sem er að Bogi er kokkur heimilisins) og bauð okkur í mat,  Geggjuð kjötsúpa, heimabakað brauð og rauðvín.  Ummmm.   Þetta varð semsagt hinn fullkomnasti dagur,- letilíf...heilsurækt...góður matur og góður félagsskapur ;)feeling_good_SS1584_enlarge

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rosalega er þetta falleg blómakarfa. Kv. Guðný sys.

Guðný sys (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 17:19

2 identicon

Það er bara leti dag eftir dag hjá þér!  Það er agalega gott annað slagið! Heppnaðist námsferðin þín vel um daginn?

Annars vildi ég bara kasta á þig kveðju og benda þér á skemmtilega síðu með fullt af myndum og skyldfólki ef þú hefðir ekki séð hana fyrr - www.123.is/mot !

Tinna Hrönn (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband