Lúkasi Birni...

...áskotnaðist þetta myndarlega glóðarauga á dögunum.   Var á hraðferð í frímínútum á fótboltavöllinn en svellið plataði hann illilega.  Það var sko myndarkúla á gagnauganum á honum fyrst og eyddum við heilum degi í kælingu,- og kælingu.  Nú er augað orðið svoldið skárra en fyrst, en ekki mjög huggulegt þó !!Huggulegur

 

Ég er nú búin að benda kauða á að þetta hafi nú gerst á besta tíma,- öskudagur framundan og hann getur leikið skúrk,- ja eða Oliver Twist !!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég elska glóðaraugu !! Meina það. Fynnst þau svo sjarmerandi.

Marcelo vinur minn var einu sinni boxari á þýska karneval (Fasching). Hann málaði á sig glóðarauga, var í slopp, með handklæði um hálsinn og vatnsgreitt hár. Minnir að hann hafi verið með hvítt sárabindi vafið um hendurnar.  Var mjög flott. Bara að kíkja á boxaramyndir á netinu.  Flott ef hann gæti fengið boxhanska.

Góðan bata  til Lúkasar og kveðja til Kolfreyju. XXX St.

Steinvör (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 23:18

2 identicon

Sæl !Elsta dóttir mín (Una Guðrún)fékk í síðustu viku eitt heljar glóðarauga eftir samstuð á gagnaugað við vinkonu sína. En þar sem hjónaleysin á bænum voru ósammála um hvort ætti að setja kalt á það og húsmóðirin lét undan þrýstingi og fór eftir húsbóndanum og kældi ekkert. Úr þessu varð svaka kúla og dóttirin átti erfitt með að opna augað daginn eftir. Í dag er hún með fallega fjólubláan lit á augnlokinu og smá rönd niður fyrir.

Ja glóaðarauga eru greinilega í tísku bæði á Suður- og Norðurlandi.

Bestu kveðjur til ykkar allra. Ragnhildur Þorsteinsd. Þorlákshöfn

Ragnhildur (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband