Kæri Gabríel

Ég er að lesa þessa yndislegu bók núna.  Kæri Gabríel eftir Halfdan W. Freihow.  Þessi bók er bréf föður til sjö ára einhverfs og adhd sonar síns.   Eftirfarandi tilvitnun er ég búin að lesa aftur og aftur og aftur. 

Skjólvegg þurfum við báðir, þú og ég.  Stundum er nóg að strokið sé mjúkum lófa, í önnur skipti þarf á ómældu innsæi og skilningi að halda til þess að detta ekki, hrapa ekki niður í hyldýpi  misskilnings, úrræðaleysis og ótta.  Oft erum við hvor annars skjólveggur, af og til ert þú minn, en iðulega þarf ég aleinn að vera þinn skjólveggur, því þér hættir svo til að hrasa og detta.  Og þá, Gabríel, verð ég stundum hræddur, vegna þess að ég hef sjálfur ekkert til að halla mér að, til að grípa dauðahaldi í, aðeins vind og birtu og víðáttu hafsins, og þú hrapar út fyrir mörk mannlegs skilnings.

Mér líður svoldið svona núna.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já kæra ÞHelga.. þetta er góð lýsing.. örugglega mörgum foreldrum sem líður akkurat svona ..en eiga erfitt með að setja það frá sér á þennan hátt.

Ég ætla ekki einu sinni að byrja að tjá mig ..um kynferðisofbeldi og misnotkun á börnum ..sem þú hefur skrifað um í síðustu færslum ..því ef ég byrjaði ..gæti ég sennilega ekki hætt!

En sendi þér bestu kveðjur héðan út vonskuveðri á Ströndum

Ragna 

Ragna (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband