Hopp og skopp

Flestum þætti það nú ekki vera tíðindi að kona hafi drifið sig í ræktina !!  En það verður að segjast eins og er að síðan ég flutti norður hefur ekkert verið alltof mikið um hreyfingu hjá mér, nema þá skíðin svona yfir háveturinn. Hef fundið mér fínar ástæður fyrir hreyfingarleysinu, aðallega tímaleysi og ekki nógu skemmtileg leikfimi í boði ;) Hef reyndar stefnt að því síðan í vor held ég bara að fara örlítið fyrr á fætur á morgnana og ganga góðan spotta og af krafti. En eins og fram hefur komið er ég B-mannsveskja og má ekki missa eina einustu dýrmæta mínútu á morgnana, þannig að enn er morgungangan á bið. 

Sá ég ekki um daginn auglýsta prima leikfimi, örugglega bráðskemmtilega, á fínum tíma ( annað barnið í fótbolta og hitt kemur bara með...) og þá var engin afsökun í boði.  Byrjaði í dag semsagt í afró,salsa,spuna hjá Önnu Richards niður í Átaki.  Er alveg fersk og fín eftir tímann, og þetta var svo gaman !!!!!!  Stefni síðan á baðslökun á Síló í kveld og þá er dagurinn fullkominn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband