Fyrirhyggjusöm

var ég nú loksins. Horfði á veðurspána fyrir helgi,- og fór og lét umfelga á föstudaginn.

En annars er nú ekki fyndið að ganga hér á Akureyri núna.  Ég gekk upp gilið í dag og átti aldeilis fótum fjör að launa vegna bíla sem fóru þvers og kruss á veginum og alveg upp á gangstétt,- eftir að hafa farið heilan hring. Bjóst á hverri stundu að verða þrykkt upp að húsvegg og komin í klessu,- en ég var sem betur fer vel skóuð. Veit ekki hvað fólk er að reyna að keyra þarna upp og niður þegar hálkan er svona og það greinilega ekki komist að í biðröðinni á dekkjaverkstæðunum, ja eða orðið undir í handalögmálunum...........


mbl.is „Morgunninn byrjaði næstum því með slagsmálum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband