Sjómannskona

clsup_fishman_2_01

Eftir 4 ára hlé sem sjómannsgrasekkja er ég komin í það hlutverk aftur,- í bili amk.  Það er svo skrítið hvað kona skiptir um gír þegar bóndinn fer á sjó.  Nú er ábyrgðin öll á mínum herðum og þá er bara að taka því.  Rangt hjá mér,- Það er eiginlega ekki að skipta um gír heldur er þetta eins og sjálfskipting,- gerist bara 1,2 og 3.  Nú er enginn annar til að elda, slá garðinn, skúra, þvo þvott, lesa fyrir börnin o.s.frv.  þannig að það er engin verkaskipting lengur,- bara ég.  Og svei mér þá, þá er þetta svosem ekkert mál.  Þetta er bara svona !! 

Það hafa orðið breytingar á samskiptum við sjómenn á þessum 4 árum.  Reyndar hefur símasambandið ekkert skánað ( man enn þegar ég undir rós sagði Boga að ég væri ófrísk af Lúkasi, allt í gegnum talstöð) en tölvusamskiptin hafa komið inn af fullum þunga.  Nú skrifumst við á daglega hjónakornin og börnin skrifa pabba líka og hafa gaman af.  Kolfreyja 7 ára skrifaði pabba sínum í gærkvöldi,- það sem henni fannst helst hafa á daga okkar drifið sem þyrfti að segja pabba frá var orðrétt "elsku pabbi, við erum búin að taka til og taka til.  Mamma er búin að lita á sér hárið." Þannig er nú það Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ mín kæra

Til lukku með nýju síðuna er sko búin að breyta tenglinum. Já er hann Bogi farinn á sjó, svona er lífið.

Hafið það gott, sjáumst við ekki á frönsku??? 

Jóhanna H (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 16:39

2 identicon

  • Skemmtilega fólkið"#$% Til lukku með síðuna, sjómannskona

Gunna G (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 20:39

3 Smámynd: Anna Pála Sverrisdóttir

Held ég treysti fáum betur til að sleppa röfli og einfaldlega láta dæmið ganga upp. 

Knús. Anna Pála, í tólf ára hléi sem nemandi þinn.

Anna Pála Sverrisdóttir, 23.6.2007 kl. 23:18

4 identicon

Þarna ertu þá, ætlaði bara að segja hvort við fengjum ekkert að njóta bloggsnilldar þinnar í sumar:-).  Rúllar nú upp sjómannskonuhlutverkinu ef ég þekki þig rétt.  Góðar kveðjur frá Ísó.

Tóta (IP-tala skráð) 24.6.2007 kl. 11:59

5 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Hvurn fj..... er Bogi að þvælast á sjóinn aftur? Var þetta ekki miklu notalegra fyrir alla þegar hann var heima.  Ég veit svo sem að þetta vefst ekkert fyrir þér....

Sigþrúður Harðardóttir, 25.6.2007 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband