Sjómannskona
23.6.2007 | 10:29
Eftir 4 ára hlé sem sjómannsgrasekkja er ég komin í það hlutverk aftur,- í bili amk. Það er svo skrítið hvað kona skiptir um gír þegar bóndinn fer á sjó. Nú er ábyrgðin öll á mínum herðum og þá er bara að taka því. Rangt hjá mér,- Það er eiginlega ekki að skipta um gír heldur er þetta eins og sjálfskipting,- gerist bara 1,2 og 3. Nú er enginn annar til að elda, slá garðinn, skúra, þvo þvott, lesa fyrir börnin o.s.frv. þannig að það er engin verkaskipting lengur,- bara ég. Og svei mér þá, þá er þetta svosem ekkert mál. Þetta er bara svona !!
Það hafa orðið breytingar á samskiptum við sjómenn á þessum 4 árum. Reyndar hefur símasambandið ekkert skánað ( man enn þegar ég undir rós sagði Boga að ég væri ófrísk af Lúkasi, allt í gegnum talstöð) en tölvusamskiptin hafa komið inn af fullum þunga. Nú skrifumst við á daglega hjónakornin og börnin skrifa pabba líka og hafa gaman af. Kolfreyja 7 ára skrifaði pabba sínum í gærkvöldi,- það sem henni fannst helst hafa á daga okkar drifið sem þyrfti að segja pabba frá var orðrétt "elsku pabbi, við erum búin að taka til og taka til. Mamma er búin að lita á sér hárið." Þannig er nú það
Athugasemdir
Hæ mín kæra
Til lukku með nýju síðuna er sko búin að breyta tenglinum. Já er hann Bogi farinn á sjó, svona er lífið.
Hafið það gott, sjáumst við ekki á frönsku???
Jóhanna H (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 16:39
Gunna G (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 20:39
Held ég treysti fáum betur til að sleppa röfli og einfaldlega láta dæmið ganga upp.
Knús. Anna Pála, í tólf ára hléi sem nemandi þinn.
Anna Pála Sverrisdóttir, 23.6.2007 kl. 23:18
Þarna ertu þá, ætlaði bara að segja hvort við fengjum ekkert að njóta bloggsnilldar þinnar í sumar:-). Rúllar nú upp sjómannskonuhlutverkinu ef ég þekki þig rétt. Góðar kveðjur frá Ísó.
Tóta (IP-tala skráð) 24.6.2007 kl. 11:59
Hvurn fj..... er Bogi að þvælast á sjóinn aftur? Var þetta ekki miklu notalegra fyrir alla þegar hann var heima. Ég veit svo sem að þetta vefst ekkert fyrir þér....
Sigþrúður Harðardóttir, 25.6.2007 kl. 16:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.