Færsluflokkur: Lífstíll
Franskir dagar !!
31.7.2007 | 18:44
Ég og börnin erum komin heim sæl og glöð eftir dásemdardaga á Fáskrúðsfirði. Komum austur á miðvikudagskveldið og gistum allan tímann hjá Marioline og familíu. Á fimmtudeginum fór ég í labbitúr upp á Engihjallann minn,- mikið svakalega sakna ég fjallanna,- verð nú bara að segja það. Um kvöldið var svo kendirísganga um bæinn, fullt af fólki og svaka fjör og síðan tekið á því á Sumarlínu á eftir.
http://www.123.is/album/display.aspx?fn=faskrudsfjordur&aid=919728785&i=0
Á föstudeginum var svoldil þreyta svona frameftir er síðan farið á dorgveiðikeppni og á frábæra tónleika með Bergþór Pálssyni ( tengdasyni Fáskrúðsfjarðar) og Diddú. Varðeldur um kvöldið og tjill og gleði með börnunum og farið snemma í bólið ( tókuð þið eftir þessu....). Gaman út í götu á laugardeginum og frábært að taka þátt í Íslandsmeistaramótinu í Pétanque, Glæsileg og taumlaus gleði á ballinu á laugardagskvöldið. Hljómsveitin Buff fær fimm stjörnur af fjórum mögulegum, dansaði fram á næsta dag ;) og skemmti mér geggt. Sunnudagurinn rólegur og næs,- út í götu og á franska kaffihúsinu og skoðaði sýningar upp í skóla. Pínu fjallganga í gær og ber í munn.
Endilega skoðið vel http://www.123.is/faskrudsfjordur/ Þarna er fullt af myndum frá Frönskum dögum. Tek ofan af fyrir þeim Jóhönnu og Jónínu sem halda úti þessari síðu...........
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jónsmessan
24.6.2007 | 20:59
Fór ekki messu,- og þó,- fór reyndar á Jónsmessuhátíð inn í Kjarnaskóg með börnunum mínum. Dvöldum þar við góða skemmtun og leik. Lúkas var búinn að vera í listasmiðju alla vikuna á undan og sýndi nú víkingalistir sínar af mikilli snilld. Við mæðgur röltum bara um og nutum kvöldsins, Kolfreyja fékk sér þó völuspá,- og svarið var JÁ !!!
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)