Ekkert met !!
24.3.2008 | 02:10
![]() |
Fólk streymir í Hlíðafjall |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Páskar
23.3.2008 | 11:55
...Barnalán er betra en fé...
Þessi fíni málsháttur leyndist í fallega súkkulaðiegginu mínu
Gleðilega páskahátíð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fiskur á föstudaginn langa !!
21.3.2008 | 22:26
Á mínu æskuheimili var alltaf fiskur á föstudaginn langa. Við systur höfum haldið í þá hefð og í kveld var þessi glæsilegi fiskur eldaður á þessu heimili. Skötuselurinn er jafn bragðgóður og hann er útlitsljótur. Notaði þessa líku fínu uppskrift frá Kalla Pálma,- afskaplega gómsætt og volga kartöflusalatið sló aldeilis í gegn. http://www.123.is/tgj/
Dagurinn í dag var náttúrulega bara yndislegur. Lúkas fór í fjallið með vini sínum kl. 10 en gafst upp á lyfturöðinni um hádegisbil,- ég fór því ekki á skíði heldur fórum við Kolfreyja í montgöngutúr með Þórhildi minnstu frænku á meðan Steinvör, Kristjón og Kristín fóru í sleðaferð upp í fjall. Við Kristjón stefnum þó að því að smella okkur á skíði kl. 9 í fyrramálið. Stólum á að flestir nenni ekki á fætur svo snemma og verðum mætt fyrst í lyfurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
En vinnan ?
21.3.2008 | 22:16
![]() |
Vantrúaðir spila bingó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Gestirnir komnir í hús,
20.3.2008 | 02:34
og upp í ból takk fyrir. Þýðir ekkert annað en að koma svona næturgöslurlum í háttinn hið fyrsta ;) Kolfreyja Sól bauð Kristínu Jónu frænku sinni í sitt ból og las hana í svefn !!! Það þótti foreldrunum ekkert leiðinlegt þar sem vaninn er að lesnar eru ÞRJÁR bækur fyrir barnið á hverju kveldi, síðan sagðar sögur ( aðallega skilst mér af því þegar Þórhildur Helga frænka datt í kindaklósettið !!! ) og að lokum sungið.............malli minn, gott að Kolfreyja gefur foreldrunum frí svona um páskahátíðina. Litla nafna mín er náttúrlega bara dásemdin ein, bros út að eyrum og spriklar og iðar.
Fullt hús matar á þessu heimili, vond veðurspá og ég stefni að yndislegum letidegi með gestunum. Sé fyrir mér að við bökum vöfflur og hitum kakó og spilum og dúllumst á meðan veðurofsinn gengur yfir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Á meðan krónan féll....
17.3.2008 | 23:24
...féll ég líka. Niður hlíðar Hlíðarfjalls altsvo. Féll reyndar ekki í þeim skilningi að ég hafi dottið, heldur fór ég svo brattar brekkur að það mætti kalla það fall !! eða það, fannst mér amk. Fór bæði Suðurbakkann og Norðurbakkann og renndi mér þaðan í Hjalteyrina og út í Ævintýraleið.
Skoðaði síðan þegar heim var komið kort af skíðabrautum Hlíðarfjalls og þá voru þessar hrikalegu bröttu fallbrekkur mínar bara rauðmerktar !! semsagt, miðlungsþungar. Ferlega fúlt,- mér leið eins og þær væru kolbikasvartar og ekki á færi nema alhugrökkustu kvenskörunga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
og við þar á meðal !!
16.3.2008 | 14:22
![]() |
Veðurblíða í Hlíðarfjalli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lista-lista-listasjúk ??
15.3.2008 | 23:07
Fer bráðum að fá menningarsjokk held ég Búin að innbyrða svo mikið af menningu undanfarið. Í dag fór ég í Ketilhúsið þar sem Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands var sungin. Alveg meiriháttar gaman og alveg ótrúlegt að engum hafi fyrr dottið í hug að gera tónverk við þennan magnaða texta. Spilarar og söngvarar voru náttúrulega dásamleg !! Á eftir ráfaði ég um Listagilið og skoðaði hinar ýmsu sýningar. Alveg mögnuð sýningin í Listasafninu,- Bæ,bæ Ísland. http://www.listasafn.akureyri.is/ Þessi sýning vekur konu sannarlega til umhugsunar.........byltingin lifi ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leikhúsið
15.3.2008 | 11:04
Heldur betur var ég heppin í gærkveldi. Það hringdi í mig bráðmyndarlegur og skemmtilegur maður og bauð í leikhúsið.....aftur. Fór með honum á Fló á Skinni og núna á Dubbeldusch sem sýnt er í Rýminu. Leikritið er frumraun leikarans Björns Hlyns Haraldssonar sem leikskálds og sýninguna vinnur LA í samstarfi við leikhópinn Vesturport. Fín sýning sem skilur töluverðar vangaveltur eftir sig. Að öðrum ólöstuðum þá ber Harpa Arnardóttir af í hlutverki móðurinnar. Hún leikur feikivel bæði hlátur, grátur og reiðiköst !!!
Alltaf gaman í leikhúsinu ;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ja,hérna hér...
14.3.2008 | 16:34
![]() |
Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)