Gæsahúð

Var að koma heim af alveg meiriháttartónleikum á Græna hattinum.  Hin færeyska Eivör Pálsdóttir var ásamt hljómsveit sinni með tónleika og hún tók allan skalann af lögum,- íslenskar ballöður og sín eigin lög bæði á færeysku og ensku.  Ég fékk svo oft gæsahúð að ég hélt að ég væri bara að verða veik,- en það var nú ekki heldur var það rödd þessarar frábæru söngkonu sem hafði svona áhrif á mig.  Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja hvernig hún fer að því að beita röddinni á svona margvíslegan hátt. Bara geggjað ;)

c_documents_and_settings_robert_my_documents_my_pictures_eivor_2


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

OOOOOOOOOOoooooooooooo, ég öfunda þig af þessari gæsahúð hún er ólýsanlega flott söngkona, ég verð að láta mér nægja að setja disk með henni í spilarann, loka svo bara augunum og láta sem ég sé á Græna hattinum Gleðilega páska til ykkar allra frá okkur í Mánaborg

Anna (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 08:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband