Eins og gerst hafi í gær ;)

Að litla stúlkan mín fæddist.  Við Bogi höfðum fengið að vita kynið á barninu en þegar hún fæddist var samt það fyrsta sem ég sagði....en þetta örugglega stelpa ;)  Eins og drengirnir mínir lét hún bíða eftir sér, ég var skráð með hana 02.02.2000. en þessi sjálfstæða stelpa kom 19.02.2000.  Þá bjuggum við í Þorlákshöfn og ég fékk verki aðfararnótt 18.02. Við Bogi fórum um morguninn til R-víkur en á fæðingardeildinni vildu þær ekki sjá mig strax þannig að Þórhildur vinkona sá aumur á okkur og lánaði okkur íbúðina sína til að bíða.....og bíða...og bíða.  Fórum ekki á deildina aftur fyrr en um miðnætti og síðan kom Þórhildur líka og var viðstödd.  Það var nú heilmikið fjör hjá okkur með Jetro Tull og Santana í græjunum..........takk Þórhildur.  Besta fæðingin mín,- kunni alveg að anda glaðloftinu rétt og alles !!  Og kreisti út þessa 17 marka pæju með dökkan lubba ;)

Pínu myndasyrpa af hinni 9 ára snót....

Á útleið

 Patrekur Lala og Kolfreyja snúðurKolfreyja og LottaSystradæturnar !!Ein ég sit og....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með fallegu Freyjuna

Þórhildur (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 20:52

2 identicon

Innilegar hamingjuóskir með yndislegu dótturina þína!

Helga S og Aðalbjörg Ýrr (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 21:31

3 identicon

TIL HAMINGJU með dömuna !

Jóna Björg (IP-tala skráð) 19.2.2009 kl. 21:40

4 Smámynd: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Til hamingju með skvísuna þína - tíminn líður svooooo hratt - lítlu börnin manns orðin unglingar áður en maður er búin að snúa sér við...

Jónína Rós Guðmundsdóttir, 21.2.2009 kl. 20:19

5 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Til hamingju med hana Kolfreyju. Hún er rosalega sæt stelpa. kk. Solla

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 1.3.2009 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband