Madama, kerling, fröken, frú.....

Hef held ég verið þetta allt,- ja kannske ekki madama (- hvað svo sem það er;)

Og flestar konur hafa verið þetta líka !!!  En er kona herra?  Ég veit að ríkisstjórnin hefur margt á herðum sínum núna,- en nú þegar svo margar konur eru ( loksins) í ríkisstjórn er þá ekki mál að breyta starfsheitinu ( það tekur bara 5 mínútur).  E-hvað svo hjákátlegt að segja um Jónínu Leós...ráðherrafrú !!! og um allar þessar flottu konur....ráðherrar.  Sé bara fyrir mér karla með bindi í dökkum jakkalakkafötum.  Þó svo dóttir mín hafi misskilið orðið ráðskona um daginn ( sagan að því kemur hér á eftir) þá legg ég til starfheitið ráðfreyja,- góð vísun í heiðnina okkar ;)  .  Verður reyndar klúðurslegt í framtíðinni að segja Kolfreyja forsætisráðfreyja.......en þarf held ég ekki að hafa áhyggjur af því í ljósi eftirfarandi ummæla dótturinnar !!

Ég sótti hana í vistun um daginn ( þegar allir fréttatímar voru fullir af fréttum af ráðherrum og þinginu).  Hún plammaðist um á inniskóm og stýran í vistuninni segir,- voðalega ertu ráðskonuleg Kolfreyja mín.  Kolfreyja leit á hana og mig....og sagði skýrt,- nei takk, ég ætla sko ekki að vera á alþingi. 

Tók ráðskona sem kvenstarfsheiti ráðherra !!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi, mér finst þetta kvenréttinda-kjaftæði komið út í öfgar............konur eru líka menn og mér finnst ráðherra bara fínt hvort sem um konu eða karl er að ræða.

Jóna Björg (IP-tala skráð) 3.2.2009 kl. 23:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband