2008
31.12.2008 | 00:27
Þrátt fyrir kreppu.....þrátt fyrir jarðskjálfta...þrátt fyrir ísbjarnarblús.....þrátt fyrir survævor í Noregi....þrátt fyrir Danmerkur/Póllandsferð.....þrátt fyrir frábæra útilegu í Fjörður....þrátt fyrir dásamlegt dingl í Hafnarfirði....þrátt fyrir allt !!
þá verður mér árið 2008 alltaf minnistæðast fyrir það að í apríl það ár dó hún mamma mín, Þórhildur,- og í maí það ár fæddist hún sonardóttir mín,Þórhildur Lotta.
Athugasemdir
Fólkið manns er það sem mestu máli skiptir.
Megi nýtt ár færa þér gæfu og gleði.
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 31.12.2008 kl. 10:02
Já Helga mín.. minningarnar, góðar, slæmar, erfiðar eða yndislegar!
Þetta er lífið! Vonandi eigið þið fjölskyldan gott ár í vændum. Kveðja frá Fáskrúðs..
Gunna (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 00:53
Elsku Helga mín, gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu. Já hvert ár er manni minnistætt sérstaklega þegar einhver kveður þennan heim og annar fæðist í hann. Ég er þér alveg sammála með áirð 2008, mér er það líka sérstaklega minnistætt þar sem pabbi minn lést mjög snögglega þegar síst var von á.
Knús á þig og þína.
Johanna Kr. H (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 13:49
Samúðarkveðjur vegna Þórhildar mömmu, elski Þórhildur Helga og hamingjuóskir vegna Þórhildar Lottu.
Einkunnarorðin mín þessa dagana eru: Svona er lífið.
Guðrún S Sigurðardóttir, 2.1.2009 kl. 21:03
Gledilegt ár, kæra Helga. Thetta hlýtur ad verda mjøg minnistætt ár fyrir thig, bædi søknudur og gledi. Hafdu thad sem best, kk. Solla
Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 3.1.2009 kl. 15:58
Sama hér. Enn svo ótrúlegt að amma sé farin og kemur ekki aftur. Einnig standa frekar óvæntir flutningar af landi brott upp úr og auðvitað góðar heimsóknir ættingja til okkar!
Sigga Inga (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 17:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.