Skrift
20.12.2008 | 10:34
Ég olli stórhættu í umferðinni um daginn,- ástæðan var sú að ég var í hláturskasti.
Ég var á leið í leikhús með Kolfreyju Sól og Emblu vinkonu hennar. Við vorum að fara á jólaleikrit. Þær voru mjög uppteknar af því hvað þær hefðu fengið í skólinn frá jólasveininum. Þá fór Embla að ræða um skrift jólasveinsins. "Veistu Kolfreyja,- hann Stekkjastaur kann sko ekki að skrifa,- hann skrifar rosalega illa. Hann skrifar bara blokkskrift og snéri E-inu öfugt og b-inu, skrifar bara ótrúlega illa." Kolfreyja varð yfir sig hneyksluð, en fór að rifja upp að hún hefði eimitt e-hvertímann fengið bréf frá jólasveini sem skrifaði allt kolvitlaust. " Já,- en Giljagaur, veistu...veistu" sagði Embla " vinkona mín fékk bréf frá honum og hann skrifar sko tengiskrift,- rosa flott"...........
svona voru umræðurnar á leið í leikhúsið,- hver skyldi kenna þessum jólasveinum að skrifa,- skyldi Giljagaur vera eldri fyrst hann skrifar svona vel....o.s.frv. ég beið bara eftir því að þær færu að ræða hvort e-hver jólansveinanna væri lesblindur ;)
Athugasemdir
Hahahahaha held meira að segja að einn þeirra bræðra hafi verið sendur á skrautskriftarnámskeið, það segja mín börn allavega alltaf þegar bræðurnir mæta hingað með pakka á aðfangadag ! En já þau hafa líka séð að sumir þeirra skrifa mjög illa og snúa stöfunum þvers og kruss .
Jólakveðja til þín og þinna frá okkur á Seyðó
Jóna Björg (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 23:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.