Dýrahaldið !!

Það var sem ég vissi þegar ég loksins leyfði börnunum mínum að fá sér dýr að það yrði tómt vesen, grátur og gnístran tanna !!  Nei, nei .....segi nú bara svona.  En amk. eftir hina æðisgengnu hamstraleit,- þá hrökk einn fiskurinn hans Lúkasar upp af.  Veit ekki hvort hann þoldi ekki hamaganginn í hamstraleitinni. Amk var hér útför í gær.  Grófum gegnum snjóinn niður að steinasafni Lúkasar og heygðum fiskangann þar !!!  Nú eiga þau jafnmörg dýr,- tveir hamstrar.....tveir fiskar !! ( og ég á þau tvö !! )

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að það er búið að jafna öll hlutföll! Votta ykkur samt auðvitað samúð mína vegna fiskjarins...

Helga S (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband