Ótrúlegt

þetta er nefnilega alveg ótrúlegt.  Ég upplifi það að ég búi í landi sem varla er hægt að kalla lýðræðisríki.  Mér finnst bankastjórn seðlabankans ráða hér lögum og lofum,- eða réttara sagt einn bankastjóri.  Og kemst upp með það...................

Líka svoldið einkennileg öll þessi umræða um Fjármálaeftirlitið og Seðlabankann,- eða jú,- auðvitað á að ræða ábyrgð þeirra,- en ..........hvurnig væri að ræða frekar um freklega íhlutun seðlabankastjóra,- sem á sér engin fordæmi.  Og auðvitað bankaráð útrásarbankanna og stjórnendur þeirra.  Þeirra er ábyrgðin fyrst og fremst.

Ef að ég get keypt mér rosa kraftmikinn bíl,- keyri eins og brjálæðingur,- fæ aðvörun og sektir frá löggunni en sinni því ekki,- eða þá að löggan nær mér ekki því hún getur jú ekki verið allsstaðar,- klessukeyri bílinn og eyðilegg aðra bíla og eignir.   Er það þá semsagt bílasalanum að kenna,- eða löggunni?    


mbl.is Samfylkingin hefði allt eins getað slitið samstarfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meiri sápu á samfylkinguna takk.

Guttormur Björn Þórarinsson (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 12:01

2 Smámynd: Valgeir Bjarnason

Pútín lét kjósa sig sem forseta, en hélt öllum völdum áfram sem hann hafði sem forsætisráðherra. Hér er ótrúleg hliðstæða á ferðinni.

Valgeir Bjarnason, 20.11.2008 kl. 12:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband