Besti heilaþvotturinn !!

Er að skella sér á skíði í smátíma. Fór í Hlíðarfjall í dag með manni,dóttur og vinkonu dóttur. Renndum okkur nokkrar ferðir,- reyndi á líkamann og hreinsaði hugann. Bara dásamlegt. Klár og fín fyrir kveldið þar sem verður etið með góðu samstarfsfólki !!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og hvað drukkið??

Guðný sys (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 17:44

2 identicon

Við Ásta Hlín röltum hér um fjallið innan um rjúpur og rjúpnaskyttur.  Öll útivist er ótrúlega nærandi fyrir líkama og sál - fossar í klakaböndum, sólin gyllti fjöllin og snjóföl skreytti brekkurnar. 

Kveðjur frá strákunum til Kolfreyju.

Líneik Anna (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 20:12

3 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

bara smá rauðvín með matnum. Dásamlegt. Já, Líkeik, það er engu líkt þetta land okkar. Og útivistin hreinsar sál og líkama. Sakna allra fossana að austan ;(

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 16.11.2008 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband