Besti heilaþvotturinn !!
15.11.2008 | 15:56
Er að skella sér á skíði í smátíma. Fór í Hlíðarfjall í dag með manni,dóttur og vinkonu dóttur. Renndum okkur nokkrar ferðir,- reyndi á líkamann og hreinsaði hugann. Bara dásamlegt. Klár og fín fyrir kveldið þar sem verður etið með góðu samstarfsfólki !!
Athugasemdir
Og hvað drukkið??
Guðný sys (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 17:44
Við Ásta Hlín röltum hér um fjallið innan um rjúpur og rjúpnaskyttur. Öll útivist er ótrúlega nærandi fyrir líkama og sál - fossar í klakaböndum, sólin gyllti fjöllin og snjóföl skreytti brekkurnar.
Kveðjur frá strákunum til Kolfreyju.
Líneik Anna (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 20:12
bara smá rauðvín með matnum. Dásamlegt. Já, Líkeik, það er engu líkt þetta land okkar. Og útivistin hreinsar sál og líkama. Sakna allra fossana að austan ;(
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 16.11.2008 kl. 01:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.