Gamall kveðskapur

Imba systir sendi mér þennan tölvupóst.  Verð að deila þessu með ykkur.   Takk fyrir Imba.

 

Svo orti Örn Arnarson árið 1932 um Odd sterka af Skaganum.

En þetta gæti verið ort í dag..

Kveðja,

IÞÞ

 

 

5. ríma - brot.

----

Þetta er mikið þjóðargrand,

þjóðarskútan orðin strand,

aldrei hefir okkar land

yfir dunið þvílíkt stand.

Íhald stýrði rangt og ragt,

rak af leið og skemmdi fragt,

í skuldakví var skútu lagt;

skömm er endi á heimskra magt.

Framsókn tók þá far að sér,

fórst þó ekki betur en ver,

kuggnum renndi á kreppusker,

kjölurinn sundir genginn er.

--

--

Íhald lastar Framsókn frekt,

Framsókn lýsir íhalds sekt,

kjaftæðið er kátbroslegt,

kuggurinn lekur eins og trekt.

--

6. ríma.

--

--

Vandasamt er sjómanns fag,

sigla og stýra nótt og dag.

Þeir, sem stjórna þjóðarhag,

þekkja varla áralag.

Eftir mikið þras og þóf

þingið upp til valda hóf

menn, sem hafa ei pungapróf,

piltar, það er forsmán gróf.

Aldrei bröndu Ási dró,

aldrei þekkti stag frá kló,

aldrei meig í saltan sjó.

-Sá held ég að stjórni þó.

--

Örn Arnarson 1932


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snillingur, algjör snillingur. En skyldu niðurrifsmennirnir sem stjórna hér skilja þetta ef þeir sæu. Mér er það til efs. En þetta hlýtur að fara að skána, verðum við ekki að trúa því. Hvað ætli þessir kónar geri í nótt???????????  Kv Guðný sys

Guðný sys (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 19:54

2 Smámynd: Óskar

Eins og það hafi verið ort í gær !!

Óskar, 10.10.2008 kl. 03:32

3 identicon

Algjör snilld .

Jóna Björg (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 21:18

4 identicon

Hahahaha þetta er algjör snilld!

Ragna rugludolla (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband