Hæstvirtur forsætisráðherra.....

Þetta er forsætisráðherra okkar að tjá sig um einn þegna sinna.  Mér finnst þetta alveg með gjörsamlegum ólíkindum. 

 

Af visi.is

Forsætisráðherra kallar Helga Seljan fífl og dóna

Geir Haarde kallaði Helga Seljan fréttamann Kastljóssins fífl og dóna á blaðamannafundi í Iðnó í dag. Helgi reyndi á fundinum að bera fram spurningu en Geir greip fram í fyrir honum og lauk fundinum.

Þegar Helgi stendur upp og gengur út úr salnum heyrist Geir hvísla að Urði Gunnarsdóttur upplýsingafulltrúa að Helgi sé fífl og dóni.

Hægt er að sjá myndband af atburðinum með því að smella á hlekkinn hér fyrir ofan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er bláa höndin í hnotskurn, HROKI. Þeir eru búnir að setja þjóðina á hausinn og kalla svo blaðamann DÓNA og FÍFL. Ég held að þeir ættu að líta í eigin barm og segja af sér með skömm, það eru þeir sem eru DÓNAR og FÍFL.

Kjartan Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 17:40

2 identicon

Haha... ég elska svona hasar   Vona að það verði slagsmál á alþingi bráðum.. og þeir útrými sjálfum sér þar.  Þá ætla ég að kaupa popp og kók og horfa á með glöðu geði

Örvar (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband