Ó mig auma !!

Ég er búin að lesa þessa frétt aftur og aftur.  Held ég sé búin að komast til botns í flestöllum orðunum í henni ( en mikið er þetta góður texti til að spreyta sig í lesskilning,- best að benda höfundum samræmdra prófa á það ;).  Held ég átti mig á hvað gjaldeyrisskiptasamningar eru og líka tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamningar, skiptalínur og skil svosem orðið greiningardeild Kaupþings þó ég viti ekkert hvað er greint í þeirri deild.  En vill e-hver vera svo væn ( n) að útskýra fyrir mér hvað endurhverf viðskipti eru ???
mbl.is Baksvið: Hvaða „vinir" brugðust?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vísindavefurinn geymir öll svör Helga mín:

http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=3797

Ég reyndi hins vegar að fletta upp "hvenær er botninum náð?" ...en fékk ekki svar

Knús og klem úr borginni!

Helga S (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 15:05

2 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Takk ástsamlega nafna mín,- mér líður mun betur ;)

Botninum er hvernig nærri náð ?? eða hvað!!

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 8.10.2008 kl. 17:29

3 identicon

Góða besta, vertu fegin að þú skilur þetta ekki. Ef þú gerðir það væri sami rassinn á þér og á þessum SNILLINGUM sem vita ekki hvað peningar eru og hvað þá að standa í skilum við sín skítaverk. Þeir þekkja bara" A4 blöð" Ertu ekki sammála mér (aldrei þessu vant)!!!!!!!!!!!!!! Kv Guðný sys

Guðný sys (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 22:19

4 Smámynd: Óskar

Hefði verið óskandi ef þessir "snillingar" hefðu lært meira en meiningu hvers hugtaks...þá væri staðan kanski önnur.

Óskar, 9.10.2008 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband