Útilega

Var að koma heim úr frábærri útilegu.  Vorum fyrst að spá í að fara í Ásbyrgi ( sem er algjör draumastaður) en vinir okkar plötuðu okkur með í Í FJÖRÐUM.  Og við sjáum svo sannarlega ekki eftir því.  Paradís á jörð. Drösluðumst yfir jeppaslóða á Hondunni okkar Smart með tjaldvagninn Krúsa í eftirdragi.  Allt gekk ljómandi vel,- en fórum að vísu frekar hægt yfir.  Keyrðum alveg út Hvalvatnsfjörð og skelltum upp tjaldbúðum niðri við sjó.  Varðeldur bæði kveldin, brjálaður berjamór ( hef aldrei séð aðrar eins hrúgur af stórum, feitum og safaríkum krækiberjum), skemmtileg fjallganga, grill, söngur, bullusögur, þjóðsögur, sólbað, fótabað, flugdrekaleikur og ég veit ekki hvað.  Set inn myndir mjög, mjög fljótlega. 

Hnuplaði þessari af netinu:

hvalvatnsfj600


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Var sjónvarp þarna??????

Guðný sys (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 19:17

2 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Ekkert sjónvarp, ekkert klósett, engin sturta, ekki sími !!   en gsm- samband upp á hól og útvarp.......sem var hlustað á í morgunsárið ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 24.8.2008 kl. 21:24

3 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Hvílík fegurð!

Sigþrúður Harðardóttir, 25.8.2008 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband