Drami

http://www.dramadrottning.com/konnun/img/rebekka_konnun.jpg

Þú ert léttsteikt dramadrottning.
Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust "rare","medium rare", "medium" eða "well done"værir þú "medium rare", léttsteikt og meyr undir tönn.

Léttsteiktar dramadrottningar eru ávallt gerðar úr besta hráefni. Þær eru lífrænt ræktaðar og því í raun móðgun að líkja þeim við hamborgara. Nær væri að framreiða þær sem steikur með góðri rjómasósu og bökuðum kartöflum.
Léttsteiktar dramadrottningar skammast sín ekki fyrir að vera dramadrottningar. Þvert á móti eru þær stoltar af því og leggja rækt við þann hluta persónuleika síns. Gott jafnvægi ríkir á milli drama og yfirvegunar. Í raun hefur léttsteikta dramadrottningin fulla stjórn á dramatíska hluta heilans. Hún er því fær um að halda dramanu í skefjum þegar við á en gerir út á það þegar hún er í stuði til þess.

Léttsteiktar dramadrottningar eru tilfinningaríkar. Þær eru gjarnan leiðtogar í vinahópi sínum, eru vel liðnar af flestum, dáðar af mörgum en einnig öfundaðar af sumum. Hin léttsteikta drottning er hins vegar haldin jafnaðargeði og lætur hólið ekki stíga sér til höfuðs eða öfundsýki koma sér úr jafnvægi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Margrét

Þar sem ég sér á lýsingunni að hólið stígur þér ekki til höfuðs og öfundssýki kemur þér ekki úr jafnvægi, er mér trúlega óhætt að segja: ÉG VILDI FÁ ÞESSA ÚTKOMU.

Ingibjörg Margrét , 15.8.2008 kl. 16:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband