Sól og blíða

Skaðbrennd á bringunni !!  Læri aldrei af reynslunni. elska að sitja úti í sól og blíðu og gleymi of oft að ég er með rauðhærða húð !!  Hef líka safnað slatta af punktum í dag................í andlitið :)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Hahah sit hér einnig með rauða bringu.....

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 8.7.2008 kl. 00:41

2 identicon

Daginn. Veistu ekki hvað "punktarnir eru"? Dóttir mín safnar svona punktum líka og segir að þeir séu"ryðgaðir endar á stáltaugum" og þá veistu það. Kv Guðný sys.

Guðný sys (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 08:23

3 Smámynd: Sigríður Inga Sigurðardóttir

Það komu einmitt nokkrir ryðgaðir endar á stáltaugum í ljós hjá mér í dag .. en þetta er það fyndnasta sem ég hef heyrt um freknur.

Sigríður Inga Sigurðardóttir, 8.7.2008 kl. 20:50

4 identicon

Eru freknur ekki tákn um hreysti? Margir hafa haldið því fram og ég skal algjörlega gúddera það! Hins vegar finnst mér þetta með ryðguðu endana snilld 

Tinna Hrönn (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 20:03

5 identicon

Er þetta flókið? Rauðhærðir eru náttla bæði hraustir og með stáltaugar!

Guðfinna Kristjánsd (IP-tala skráð) 9.7.2008 kl. 21:47

6 identicon

Freknur eru fallegar.. ég fæ nú ekki margar í andlitið en handleggirnir maður minn;) En já ryðgaðir endar.. snilld;)

Gunna (IP-tala skráð) 10.7.2008 kl. 11:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband