Lúxus....
29.1.2008 | 20:55
líf á húsfreyjunni nú í kveld. Hinn 10 ára sonur er nefnilega byrjaður í heimilisfræði. Og þar sem ekkert fag er skemmtilegra og enginn matur betri en fólk eldar sjálft,- þá kom hann heim með uppskrift af grænmetissúpu í gær og við fórum og versluðum í matinn. Hann valdi gaumgæfilega allt grænmetið og mamma borgaði. Í kvöld þrefaldaði hann uppskriftina ( stærðfræði á fullu) og mallaði öllu saman. Og NB orð heimilisfræðikennarans eru lög !!! Það á að skera kálið í þessa stærð og laukinn í þessa ;)
Geggjuð grænmetissúpa að sjálfsögðu....................og allir borðuðu af bestu lyst.
segið svo að það sé ekki heimanám í gangi í Löngumýrinni !!
Athugasemdir
Góður! Ekkert skemmtilegra en að elda!
Ertu að segja mér að drengurinn hafi fyrst núna verið að byrja í heimilisfræði?
Sigþrúður Harðardóttir, 30.1.2008 kl. 13:26
Þetta er svo frábær aðferð ..ég hef mikið notað smíði, handvinnu og heimilisfræði til lærdóms á stærðfræði og íslensku. Miklu skemmtilegra þegar nemendurnir eru áhugasamir ..um efnið. Svo væri nú gaman að fá uppskriftina:o)
Bestu kveðjur
Ragna
Ragna popparadóttir (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 16:12
Nei, nei Sissa mín,- hann var í heimilisfræði í fyrra líka,- en er semsagt bara hálfan veturinn. Í Brekkuskóla ( og Lundarskóla) háttar þannig til að það er aðeins ein heimilisfræðistofa þrátt fyrir 550 nemendur !!! reyndar eins með smíða/textil og myndmennt. Töluverður aðstöðumunur er í nemendafærri skólum.......
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 30.1.2008 kl. 18:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.