Ein ég bíð og vona...
27.1.2008 | 12:01
Undanfarnar fjórar helgar hafa góðir vinir komið í heimsóknir hingað norður til mín. Það hefur óumræðilega þrjá stóra kosti í för með sér að fá næturgesti. Í fyrsta lagi er náttúrulega frábært að hitta vini sína, spjalla og allt það. Í öðru lagi þá er það gríðarlega gott fyrir slugshúsmóður sem mig að fá spark í rassinn og þrífa allt heimilið áður er gesti ber að garði. Aldrei held ég það hafi gerst í minni húsmæðrasögu að gólf hafi verið þrifin jafnoft á jafnskömmum tíma, þurrkað af og duddast svona, það er ekki laust við að parketið sé farið að emja undan ofþvotti ;). Í þriðja lagi þá er fram borinn hér gúrmetmálsverður um hverja helgi, mikið lagt í eldamennsku og voðalega gaman. Þessa helgina á ég von á gestum semsagt fimmtu helgina í röð,- í gær var hér allt þrifið hátt og lágt,- hreindýrið komið í marinerinu og alles. En gestirnir sem áttu að koma með fyrstu vél í morgun eru enn í borg óreiðunnar og óheillindana !! Ein sit ég hér í tandurhreinu húsi, með hreindýrið malandi í marineringunni og bíð....................koma nú strákar !!!
Innanlandsflug liggur niðri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Æjæ, ég vona að þú sitjir ekki enn og bíðir! Þú hefur að minnsta kosti fengið nóg af kjöti að borða! :)
Tinna Hrönn (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 16:00
O, passaðu þig þessi þryf geta orðið vanabindandi
Anna Ólafs. (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 16:01
Nei, nei Tinna mín,- hætti að bíða þegar leið á daginn og sat hér eins og drottning í tandurhreinu húsi. Gagn að húsið haldist vel hreint,- en auðvitað þarf að þrífa aðeins fyrir næstu helgi en þá ætla strákarnir að gera aðra tilraun til heimsóknar. Svo Anna mín,- þetta er orðið vanabindandi !!
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 28.1.2008 kl. 22:01
þarf greinilega að fara að heimsækja þig!! Skömm að því að ég hafi ekkert hitt þig heillengi!!
Krisrún frænka (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 13:57
Já Kristrún mín, vertu velkomin norður. Láttu mig vita með fyrirvara svo ég geti skúrað og lagt kjöt í marineringu ;) Svo förum við á skíði saman....
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 29.1.2008 kl. 14:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.