Sjálfsupphafning !!

Bréfið sjálft er nú alveg ótrúlegt !! http://eyjan.is/files/2008/01/goj.pdf  Þvílík lofrolla um sjálfan sig sem blessaður maðurinn telur upp.  Hann segir að eftir að hann lét af embætti formanns Kjördæmissambands framsóknarmanna þá hafi nú hallað undan fæti og þeim sem tók við hafi ekki auðnast að viðhalda samheldni, samvinnu og gleði. Einnig segir hann að þegar hann var þingmaður þá hafi hann talað og talað ( kannske bara um sjálfan sig ??) manna mest af framsóknarmönnum og setið í fjölda nefnda.  Gott er að e-hver taki eftir því að hann var afkastamikill,- skárra en ekkert að það var hann sjálfur Cool 

Þvílík skrif hjá manninum- gagn að hann sé vel klæddur !!

Það skal tekið fram að undirrituð hefur örsjaldan kosið framsóknarflokkinn og telst seint til stuðningskvenna hans.


mbl.is Gagnrýnir fatapeninga framsóknarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Bergkvist

"Undirrituð hefur "örsjaldan" kosið Framsóknarflokkinn", er ritað með smáu letri. En það á nú bara ekki að viðurkenna svona mistök....

Guðmundur Bergkvist, 19.1.2008 kl. 14:31

2 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Jú, jú Beggi minn,- bernskubrekin eru til að læra af þeim  Ég skrifaði meira að segja einu sinni í menntó ægilega haleljújaritgerð um frammarana,- uss og svei.............Jón Ingi kennari skrifaði í athugasemd við ritgerðina....gott er að vera sannfærður !!!

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 19.1.2008 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband