Jól, jól og jól
25.12.2007 | 22:28
Núna er frúin risin úr rekkju eftir heilan dag í koju, búin að sofa og sofa og svitna og svitna. Ætli þessi pest sé ekki spennufall eftir strembinn desembermánuð. Hef greinilega ekki þolað afslöppunina í gær. Bogi búin að færa mér heitt todd inn í sófa, fullt af kertaljósum og jólatréð dásamlegt. Sit og vafra um vefinn eins og er en rétt bráðun held ég áfram í arfagóðum krimma.....
Við Kolfreyja fórum í aftansöng kl. 18 í gær og sóttum jólin. Dásamlega skemmtileg ræða hjá séra Óskari, hann og organistinn gerðu jólaguðspjallið ógleymanlegt. Takk fyrir.
Heima stússuðu Lúkas ( sem vill ekki í kirkju þann dag sem alltaf er verið að tala um Lúkas- eins og hann segir sjálfur) og Bogi við rjúpurnar og auðvitað toppar Bogi sig hver einustu jól. Aldrei betri sósa, aldrei betri rjúpur og aldrei betra rauðkál. Ris a´la mande á eftir og Lúkas fékk möndluna blessaður. Börnin svo stillt og góð að ég var farin að velta fyrir mér hvort hefðu orðið e-hver skipti. En þau líta alveg eins út og áður ;) Fullt af kræsilegum pökkum. Mér er greinilega ætluð slökun, sængurföt, rauðvínsglös og rauðvín, uppskriftabækur, leikhúsmiðar, kerti, Lisu Ekhdal diskur og andlitsbað...................ummmmmm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.