Heimsklassa restúrant ;)
25.11.2007 | 11:51
Bóndinn var heima um helgina og við barnlaus, þar til í dag altsvo. Okkur datt í hug að það gæti nú verið gaman að fara út að borða en svo langaði okkar bara til að vera heima og borða góðan mat þar. Og malli minn,- þvílíkur matur. Hér kemur uppskrif af hreindýri a´la Helga og Bogi.
Hreindýrafile,- látið liggja í rauðvíni í hálfan dag og í lokin skelltum við dassi af teryaki sósu út á.
Frúin bjó til salat,- klettasalat og veislusalat skellt saman, smátt skorinn rauðlaukur og slatti af fetaost. Og síðan bjó frúin einnig til sætukartöflumús,- sætar kartöflur mauksoðnar,- stappaðar og smá engiferrót röspuð saman við. Við þetta var bætt fljótandi hunangi og salti. Nammi, namm.
Bogi skar síðan file-ið í passlega bita, hitaði á pönnu olíu og teryaki sósu,- saltaði og pipraði kjötið og steikti síðan í örskamma stund. Setti í pott slatta af mareneringunni, soðinu af pönnunni og bætti við worcestersósu og rjóma, lét sjóða. Ummmm, besta sósa ever.
Þetta var náttúrulega alveg guðdómleg máltíð !!! Besti restúrant í heimi er heima hjá mér ;)
Athugasemdir
Nammi namm! Maður fær bara vatn í munninn......
Guðmundur Bergkvist, 25.11.2007 kl. 14:35
Kannast eitthvað við þetta, er þetta sama uppskrifin og birtist í Gestgjafanum? Ef svo er þá mæli ég með að hreindýraunnendur prófi
Albert (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 08:24
Nei Albert minn,- þú getur ekki kannast við þetta því þetta var nú alveg imprúveraserað á staðnum núna og ég amk hef ekki eldað hreindýrakjöt áður svona. En þig hefur kannske dreymt þetta ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 26.11.2007 kl. 09:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.