Forsetaembættið er í boði ???

Ég er alveg yfir mig bit.  Gjörsamlega yfir mig bit.  Sat í fyrramorgun með mínum ljúflings 9. bekkingjum og hlutstaði á ávarp forsetans um forvarnardaginn.  Missti eiginlega af ávarpinu öllu vegna upphafsins.  Var ég að hlusta á forseta Íslands?  Þið vitið,- Forsetinn með stóru Fi.  Þið vitið,- sameíningartákn þjóðarinnar.  Þið vitið,- æðsta embætti íslensku þjóðarinnar.

Í upphafi ávarpsins,- ( á það má hlusta á http://www.forvarnardagur.is/  og hafið í huga að það er verið að tala við 14 og 15 ára börn) þegar foresetinn hefur heilsað og óskað til hamingju  með daginn þá segir hann "lyfjafyrirtækið Actavis styrkir nú eins og í fyrra forvarnardaginn á afar myndarlegan hátt".  Já,- bitti nú,- er búið að selja forsetaembættið og það sem það stendur fyrir ?Erum við gjörsamlega og algjörlega gengin markaðshyggjunni á vald ?

Og svona í lokin á umræddu ávarpi og myndbandi í kjölfarið þá eru hin 14 og 15 ára börn enn og aftur vel minnt á að forvarnardagurinn sé styrktur af lyfjafyrirtækinu Actavis.  

p.s. það skal skýrt tekið fram að ég hef ekkert á móti umræddu fyrirtæki,- bryð pillur frá þeim í tíma og ótíma ;),- en mér finnst að ákveðin  embætti og ákveðnir hlutir í okkar þjóðfélagi eigi ekki að vera í klóm markaðsins !!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sé ekkert að því þó forsetinn telji upp þá sem standa að átakinu. Það sem vakti þó athygli mína var að hann nefndi hvorki H.Í. né H.R. sem samkv. heimasíðunni standa líka að forvarnardeginum.

Albert Eiriksson (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 15:33

2 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Þarna var hann ekki að tala um þá sem standa að átakinu,- heldur ´þá sem STYRKJA  það peningalega..

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 23.11.2007 kl. 15:43

3 identicon

"Money makes the world go around" 

(samt ekki  flest það skemmtilegasta held ég)

Steinvör (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 22:14

4 identicon

Alveg sammála þér þarna Helga. Næst verður það biskupinn sem talar í boði Durex.

Björgvin Valur (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 12:05

5 identicon

Ég hef nú ekki pælt í þessu en ég held að ég sé nú samt sammála þér Helga, finnst að forsetinn eigi að vera algjörlega óháður og ekki auglýsa fyrirtæki þó þó séu styrktaraðilar!

Hér fyrir neðan ræðir þú um titla kvenna og karla. Mér finnst flott að konur séu ráðherrar og mér fyndist mjög hallærislegt ef þær yrðu allt í einu ráðfrúr, ráðynjur eða hvað annað. Ég yrði amk mjög stolt af því að verða ráðherra, finnst það virðulegt!

Annars vildi ég kasta á þig kveðju.

Tinna

Tinna Hrönn (IP-tala skráð) 24.11.2007 kl. 12:12

6 identicon

Ég er hjartanlega sammála þér með forsetaembættið. Mér finnst markaðssetningin alveg ótrúleg, hún teygir anga sína út um allt. T.d. þegar Georg mörgæs kemur í heimsókn í leikskólana, þegar blöðrurnar frá símanum eða Glitnir o.fl.  svífa um loftin blá á 17 júní. Það er aldrei friður fyrir þessum áróðri hvort það er með óbeinum- eða beinum hætti.  

Ásta Eggertsd (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband