Sniðugt !!

Þetta er nú afar sniðugt kerfi.  Hægt er að fá bæði bílastæðisklukku sem límd er í gluggann á bílnum og líka klukku sem sett er við framrúðuna þegar bílnum er lagt við stæðin.  Ég hafði ekki svona álímda klukku fyrst heldur lausa.  Skildi síðan ekkert í því að klukkurnar voru alltaf að hverfa og ég var í því að spæna inn í banka að ná í nýja lausa klukku.  Það var ekki fyrr en Bogi sagði við mig einn dag,- ertu að safna klukkum,- sem ég uppgvötaði að minn snyrtilegi maður skellti klukkunum upp í sólskyggnið.  Þegar betur var að gáð voru þær orðnar 5 þar.  Þannig að ef þið komið í heimsókn til mín, þá á ég nóg af lausum klukkum,- enda búin að fá mér eina fasta núna.
mbl.is Færri stöðumælasektir á Akureyri með nýju kerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband