Haustið....

...gjörsamlega umlukti mig um helgina.  Var í algjöru letikasti,- slæptist um húsið, komst með erfiðismunum út í búð,- nei alveg rétt, fór ekkert í búð ( þess vegna var mjólkurlaust í morgun) og bara svona hékk. 

Svona helgar eru náttúrulega alltof fáséðar, dásamlegar og yndislegar. 

Afrekaði þó að kenna Lúkasi tveggja manna vist,- hei, hó, búin að eignast meðspilara.  Það hitnaði heldur betur í spilunum á laugardagskveldið.  Man ekki hvort vann ( svona í heildina).

Byrjaði sunnudaginn á messu  í Akureyrarkirkju, þar sem Kolfreyja söng í barnakórnum. Ætlaði síðan að enda sunnudaginn í messu í Akureyrarkirkju um kveldið en þar sem minn ektamaður kom fyrr í land en áætlað var og beint í flug norður þá tók ég hann framyfir börn regnbogans og sótti hann á flugvöllinn á þeim tíma.  Hitti hommana bara seinna ;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Bergkvist

Hva, eru hommarnir farnir að halda messur eða var sérstök hommamessa í Akureyrarkirkju?

Guðmundur Bergkvist, 24.10.2007 kl. 13:06

2 identicon

Hó hó! Auðvitað tekurðu Bogann fram yfir hommana og það eru sko engir fordómar :)

Er að vinna í nýrri síðu, mátt alveg kigga! :)

Tinna Hrönn (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 19:16

3 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Já Beggi minn,- messan sem ég ætlaði í var svona regnbogamessa,- í samvinnu Samtaka 78 og Akureyrarkirkju.  Svona hommamessa á Akureyri ! Hér eru allir svo líbó,- líka prestarnir ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 24.10.2007 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband