Löt
15.12.2008 | 21:25
hef veriđ svoldiđ löt á blogginu undanfariđ. Bćđi hefur snjáldurskinnan tekiđ ţann tíma sem fór kannske í bloggiđ og svo er ég bara búin ađ vera hundlasin. Lá heima á ţri-mi og fi en dreif mig á vinnu á föstudag. Ekki ađ ég vćri orđin heil heilsu....heldur stóđ svo margt fyrir dyrum hjá börnunum um helgina og mér fannst út úr kú ađ vera heima veik á föstudag og síđan á fullu međ börnunum um helgina. En mér var nćr ( ekki brók)....fór reyndar á laugardeginum á leikritiđ Lápur og Skrápur međ Kolfreyju Sól og vinkonu hennar ( ţar sem Lúkas tók piparkökubakstur hjá vini fram yfir okkur) en lá síđan eins og skata ţađ sem eftir var dags. Á sunnudeginum skrölti ég á ađventuhátíđ sunnudagaskólans ţar sem Kolfreyja söng međ barnakór kirkjunnar og kór Lundarskóla söng einnig. Meira gerđi ég ekki ţann daginn.....punktur og basta takk fyrir. Í stađ ţess ađ skeiđa kát og glöđ út á Ţelamörk ađ höggva jólatré ( ekki mann og annan) og fara síđan ađ syngja jólin inn í Akureyrarkirkju eins og ćtlunin var ţá lá ég hreinlega eins og undin tuska og orkađi ekki ađ hreyfa legg né liđ. Ţrátt fyrir misgáfulega ráđ frá ćttingjum og vinum á snjáldurskinnu ( sem ég hef auđvitađ öll prófađ), sólhattaát, hóstamikstúru, sítrónute og ég veit ekki hvađ ţá er ég enn hundslöpp. Kannske kökurnar sem ég fékk á kökufundi skólastjóra í dag hressi mig viđ. Bind amk. vonir viđ ţađ ađ vera orđin ţokkaleg fyrir jól ;)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)