var það fyrir jafnréttið ?

sem Guðni sagði af sér ?  Bjarni nýbúinn að stíga í burt fyrir konu,- þá fer Guðni út af þingi og kona kemur í hans stað á þing og kona tekur hans sæti í forystustól flokksins.  Ef svo fer fram sem heldur þá verður Framsókn aðal jafnréttisflokkurinn !!! 
mbl.is Eygló tekur sæti á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólastýrukjúlli

Starfsfólk Lundarskóla hélt sinn frábæra árlega haustfagnað um helgina.  Ég og þrjár stöllur mínar mættum með gasalega fínan kjúklingaofnrétt.  Upphaflega uppskriftin hét skólastjórasúpa,- en þar sem við breyttum súpunni í ofnrétt þá náttúrulega breytti ég heitinu á réttinum í

skólastýrukjúlli !!

Hér eru síðan herlegaheitin.....mjög gott...

4 kjúklingabringur...........kryddaðar þokkalega vel og eldaðar í ofni.  Á meðan er hvítlaukur, púrrulauku, rauð paprika og græn paprika saxað niður og mýkt á pönnu.  Við þetta er síðan bætt einum litlum haus af brokkolí og einum litlum haus af blómkáli ( eftir á að hyggja held ég að það sé gott að hafa gulrætur líka og jafnvel sveppi).  Þetta er semsagt allt steikt og út í sett ein askja af rjómaosti ( 400 gr),- slatti af sweet chilisósu ( þarf að smakkast til), kjúklingakraftur, peli af rjóma og auðvitað s+p.

Kjúklingabringurnar skornar niður og bætt við allt hitt ( hér er líka svona eftir á að hyggja mjög gott að setja mangó útí).  Öllu komið fyrir í eldföstu móti,- rifinn ostur yfir og síðan er þetta hitað í ofni þar til osturinn er vel bráðinn.  Með þessu er gott að hafa brauð,- og ferskt salat ( ég er salatfíkill á háu stigi).

Ef þið viljið breyta þessu í súpu aftur,- þá á ekki að setja neitt í eldfast mót ( ok. sparar uppvask),- og þegar allt gumsið er sett saman er bætt við einum og hálfum lítra af vatni og chilisósan á að vera alveg heil flaska og látið sjóða niður aðeins. .  Kjúllinn í bitum út í í restina og ost má setja út í súpuna.


Bloggfærslur 17. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband