Algjör sveppur

Í góðviðrinu í dag ( 17 stiga hiti ;) fórum við fjölskyldan í sveppaleiðangur.  Boga hefur lengi langað að þekkja sveppi og ætlaði alltaf þegar við bjuggum fyrir austan að fara á sveppatínslunámskeið, en aldrei varð neitt úr þvi ( svona eins og gengur ).  Við glugguðum á netið og vorum nokkuð viss um að þekkja Lerkisveppi þannig að inn í Kjarnaskóg var skeiðað og fullt af Lerkisveppum tíndir í skókassa og léreftspoka.  Nú stendur Bogi við eldavélina og steikir sveppi.  Síðan á hann bara eftir að skreppa og sækja hreindýrið sitt og þá verður nú veisla ;)

suillus_grevillei


Myndir

Var að setja inn myndir í albúmið "Sumarið 2008".  Kerfið að stríða mér og gekk hægt,- setti því inn miklu færri myndir en til stóð en vonandi gengur betur á morgun.  Þær myndir sem eru komnar eru auðvitað af barnabörnunum Patreki Jóhanni og Þórhildi Lottu....og síðan rest af familíunni. 

Lotta og Lúkas

 

 

Patrekur Lala og Kolfreyja snúður

 

 

 

Stoltur föðurbróðir með Lottu litlu ;)

 

og montin Kolfreyja með Patrik sinn


Nú !!

Voðalega var hann seinn að fatta þetta karlgreyið !!  Þetta vissu allir aðrir strax í upphafi......
mbl.is Ólafur: Blekktur til samstarfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drami

http://www.dramadrottning.com/konnun/img/rebekka_konnun.jpg

Þú ert léttsteikt dramadrottning.
Ef dramadrottningar væru hamborgarar sem fengjust "rare","medium rare", "medium" eða "well done"værir þú "medium rare", léttsteikt og meyr undir tönn.

Léttsteiktar dramadrottningar eru ávallt gerðar úr besta hráefni. Þær eru lífrænt ræktaðar og því í raun móðgun að líkja þeim við hamborgara. Nær væri að framreiða þær sem steikur með góðri rjómasósu og bökuðum kartöflum.
Léttsteiktar dramadrottningar skammast sín ekki fyrir að vera dramadrottningar. Þvert á móti eru þær stoltar af því og leggja rækt við þann hluta persónuleika síns. Gott jafnvægi ríkir á milli drama og yfirvegunar. Í raun hefur léttsteikta dramadrottningin fulla stjórn á dramatíska hluta heilans. Hún er því fær um að halda dramanu í skefjum þegar við á en gerir út á það þegar hún er í stuði til þess.

Léttsteiktar dramadrottningar eru tilfinningaríkar. Þær eru gjarnan leiðtogar í vinahópi sínum, eru vel liðnar af flestum, dáðar af mörgum en einnig öfundaðar af sumum. Hin léttsteikta drottning er hins vegar haldin jafnaðargeði og lætur hólið ekki stíga sér til höfuðs eða öfundsýki koma sér úr jafnvægi.

 


Skrumskæling á lýðræðinu !!

Það er alveg með ólíkindum að lýðræðið sé komið í svona ógöngur.  Ein manneskja ræður öllu,- fyrst Björn svo Ólafur og nú Óskar, Bóó.  Það þyrfti eiginlega að setja inn í kosningarlög að ef flokkur fær einungis eina manneskju inn þá féllu þau atkvæði niður !!  Það er hrikalegt að fólk með fæstu atkvæðin á bak við sig skulu ráða mestu.  Held ekki að það hafi verið hugmyndin með lýðræðinu !!
mbl.is Óskar hefur fullt umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri þvælan

og ruglið í borgarpólitíkinni.  Þvæla sem kemur öllum landslýð við því Reykjavík er jú höfuðhreppur vor. Mér finnst þetta allt orðið þvælt og ruglað.  Vera við völd, til þess eins að vera við völd !!  Legg til að 100 daga meirihlutinn taki við !!
mbl.is Fréttamenn bíða í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með ólíkindum...

...hve margir líta loftbyssur léttúðugum augum.  Ég þekki fleiri en eitt foreldri sem hefur keypt og smyglað inn loftbyssum fyrir börnin sín.  Þessi foreldri eru hið vænsta og yndislegasta fólk og telja sig bara vera góð við börnin sín, eins og þau átti sig alls ekki á því að þetta eru ekki leikföng,- amk. eru þetta lífshættuleg leikföng.  Ég get heldur ekki ímyndað mér hvernig viðkomandi foreldrum myndi líða ef barnið þeirra skaðaði aðra manneskju með loftbyssunni sem smyglað var af foreldrinu !!
mbl.is Fékk loftbyssuskot í sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að vera amma er unaður !!

Allavegana þegar kona á eins yndisleg barnabörn og ég ;)  Þórhildur Lotta er reyndar flogin heim til sín með mömmu sinni en ég, afinn og frændsystkinin fáum að dekstra við Patrek Jóhann.  Hann er 2ja ára og akkúrat á þvílíku máltökutímabilinu að það þarf heldur betur að gæta sín.  Ég hef svona 3var knúsað hann og kallað Patta púka.....og nú gengur drengurinn um allt og segir "Patti púki".  Bojafi hoppa trambó er líka mikið notað orðasamband þessa dagana,- og hoppar afinn í gleði sinni á trambó daginn langan ( ef hann væri svona viljugur að gera allt sem ég bið hann um ;).  Sælan verður áfram í nokkra daga en síðan ætlar Bojafi að aka með afadrenginn sinn á heimaslóðir og taka börnin sín með ( skellir sér á einn fótboltaleik í leiðinni ;) og þá get ég unnið.....allan sólarhringinn...rétt á meðan.

P4180061


Króksmót

Var að koma heim af bráðskemmtilegu Króksmóti.  Fengum allar tegundir af veðri nema rigningu og snjókomu.  Það var aldeilis kominn tími til að fara í útilegu með hinn fína og flotta tjaldvagn okkar.  Hann hefur lítið verið hreyfður í sumar, (vinir okkar hafa þó fengið hann lánaðan 2var).  En núna var það semsagt Langamýrargengið sem var í vagninum sínum og eitt barnabarn að auki.  En við vorum svo lukkuleg að fá hann Patrek Jóhann lánaðan.  Þvílík sæla að vera amma og afi.  Geta dekstrað við barnið og þurfa ekki að hafa áhyggjur af afleiðingunum ( það verður bara foreldranna höfuðverkur;).  Og frændsystkinin keppast um að gæta drengsins, svæfa og skipta á bleyju.  Lúkas var að keppa í fótboltanum og gekk með mestu ágætum.  Við hittum líka fullt af góðum vinum að austan og vestan af Blönduósi.  Tjölduðum við hliðina á Evu og Kára ( en það höfum við yfirleitt gert ef við tjöldum á Króksmóti) og áttum góðar stundir með þeim.  Nú er bara tjill og sæla framundan sem oft áður....Bogi kominn heim í frítúr ;)

Orðsnilld !!

Börnin mín eru alþekkt fyrir orðsnilld sína,- eins og flest börn náttúrulega.

 rostungurKolfreyja Sól þekkir seli,- og silung,- og hefur búið fyrir austan þar sem oft er sagt selungur um þann feiknagóða fisk að flámælskum sið !!  Hún sá forsíðu fréttablaðsins í gær og kom til mín hróðug og sagði " sko, þarna er selungur " en þar var þá þessi fíni rostungur ;)

 

 

 

 

 

 

Þetta minnti mig á frumburð minn, Kjartan Þór, sem fór með mér í húsdýragarðinn og sá þar lömb, 206-0698_IMGkálfa og hænuunga,- þegar við komum í geitahúsin þá hrópaði hann upp yfir sig "nei, sko geitungana" og átti þá auðvitað við kiðlingana,(- sem Kolfreyja hlýtur að kalla keðlinga ;)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband