hvað með aðra þéttbýlisstaði ??

ég er svei mér farin að halda að skjálftans hafi ekki orðið vart í Þorlákshöfn.  Þóttist þó heyra í fréttum í gær að Hveragerði og Þorlákshöfn hefðu orðið illa úti,- en það hlýtur bara að vera misheyrn hjá mér.  Nú er það bara Árborg ( og þá Selfoss-hluti þess en síður Eyrarbakki og Stokkseyri) og Hveragerði sem virðist hafa hrist e-hvað að ráði.  Eða hvað ?
mbl.is Enn að ná sér eftir skjálftann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottir krakkar

Komnar nýjar myndir í myndaalbúm !! 

Lúkas og Þórhildur Lotta

P5240111

P5230093Kjartan Þór með börnin sín tvöP5240097

 

 

Kolfreyja Sól og Þórhildur Lotta


Skjálftinn

Það nötraði allt og skalf á Suðurlandinu í gær.  Allt fólkið mitt er heilt á húfi en það munaði nú ekki miklu með Cristine, þýsku ömmu barnanna minna, sem hélt á Lottu litlu ( 2ja vikna) í fanginu og skápur féll hársbreidd frá þeim.  Þau fóru öll upp í Landeyjar í nótt og hafa vonandi sofið vel.  En það er víst allt í rúst heima hjá þeim, skápar,sjónvarp, bækur o.s.frv. út um allt.   Það var heldur ekki fallegt um að litast í húsinu hennar mömmu í Hveragerði. 

jarðskjálfti Hveró2  Hér hefur nú skúffa rennt sér út til að grípa fínu kristalsskálina þeirra mömmu og pabba ;)

 

 

 

 

 

jarðskjálfti HveróSjónvarp og bækur, allt út um allt !!


Þvottur !!

Enga manneskju hef ég fyrirhitt sem er jafnóheppin með þvottinn sinn og hann vinur minn Kurt Wallender.  Sama hvaða bók ég les um þann frækna, sænska lögregluþjón, alltaf er hann að bóka þvottahúsið af og til og ævinlega gleymir hann síðan því að hann eigi þvottahúsið.  Skil ekkert í því að hann eigi hreinar skyrtur ;)

MankellHenning_1lÞetta er altsvo ekki Kurt vinur minn,- heldur "faðir" hans Henning Mankell


Sjómannalagakeppni

Bergkvist vinur minn bendir á síðunni sinni að sjómannalagakeppni Popplands sé í fullum gangi.  Þar á Lilli popp stórgott lag,- Heim,- og ekki er textinn síðri.  Mig langaði heim.....

Hvet alla fáskara að tékka á laginu og kjósa ef þeim líkar http://www.ruv.is/heim/vefir/poppland/sjomannalagakeppni/

 Mig langar heim....faskrudsfjordur04_sandfell


Gerist afar sjaldan....

...en nú er ég alveg sammála Jóni Steinari Gunnlaugssyni.  Þetta telst nú varla það stórbrot að senda eigi fólk landa á milli til að fara fyrir dóm.  Þá held ég að margir væru komnir heim á klakann....
mbl.is Framsal Pólverja ógilt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komin heim !!

Ég og minni börnin mín erum komin heim eftir frækna ferð í Hafnarfjörðinn og Selfoss.  Eins og fyrr segir skrapp ég inn í höfuðhreppinn á stórgóða tónleika en að öðru leyti hélt ég mig langt í burtu frá þeim voðastað ;) Gott að vera í Hafnarfirðinum og fór ég á skemmtilegan vinnufund jafnréttisskóla sem haldinn var í Lækjarskóla.  Börnin undu sér hjá Lúkasi afa og Steinvöru frænku.  Síðan fórum við austur á Selfoss að hitta Þórhildi Lottu, Patrek Jóhann og foreldra þeirra. Lotta litla er náttúrulega bara dásemdin ein ( set inn myndir þegar tími gefst) og þau hin líka.  Cristine amma frá Þýskalandi var líka í heimsókn þannig að ég gat æft mig í þýskunni ( tíhí).  Þarna snúlluðum við ömmurnar við barnabörnin og börnin og þeim hefur væntanlega liðið eins og blómi í eggi ( eða ekki,- kannske fúlt að fá ekki frið ;).

En alltaf er nú gott að koma heim aftur.............


Klíka

Þetta er nú meiri klíkuskapurinn ;)
mbl.is Íslendingar velja norrænt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarlega gaman ;)

Ég og Steinvör systir skemmtum okkur alveg drottningarlega. Misstum okkur náttúrulega alveg í Down on the corner.  Það var líka gaman að vera svona í yngri kantinum á tónleikunum ;)
mbl.is Fogerty skemmti Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nákvæmlega

Það er nauðsynlegt að börn fái tækifæri til að þroska eigið hugmyndaflug, áræðni, þor og hæfileikann til að hafa ofan af fyrir sér sjálf.  Hlýtur að efla sjálfsvitund og virkni.  Auðvitað.


mbl.is Börnum hollt að leiðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband