Frábær mynd

Hún er alveg frábær myndin sem nemendur í Lundarskóla gerðu.  Ég er búin að sjá þessa mynd aftur og aftur og fæ aldrei leið á henni.  Fæ eiginlega alltaf bara hrifningarhroll.  Hrifningu yfir frábærri vinnu nemendanna og ekki síður yfir því frábæra kennsluskipulagi og aðferðum sem beitt var.
mbl.is Draumsýnin enn fjarri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

átti ekki að spara?

Og hvað kostar þetta bull ?
mbl.is Farið yfir störf KPMG fyrir skilanefnd Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afsögn !!!

NÚNA Björgvin
mbl.is Björgvin vissi ekki um KPMG fyrr en í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrahaldið !!

Það var sem ég vissi þegar ég loksins leyfði börnunum mínum að fá sér dýr að það yrði tómt vesen, grátur og gnístran tanna !!  Nei, nei .....segi nú bara svona.  En amk. eftir hina æðisgengnu hamstraleit,- þá hrökk einn fiskurinn hans Lúkasar upp af.  Veit ekki hvort hann þoldi ekki hamaganginn í hamstraleitinni. Amk var hér útför í gær.  Grófum gegnum snjóinn niður að steinasafni Lúkasar og heygðum fiskangann þar !!!  Nú eiga þau jafnmörg dýr,- tveir hamstrar.....tveir fiskar !! ( og ég á þau tvö !! )

Æðisgengin hamstraleit !!!

Eftir að hafa eytt gærdeginum í dásamleg jólagjafainnkaup þá kúrði familían sig yfir sjónvarpi, poppi og vatni.  Þegar einni mynd var lokið og ég sendi börnin í bólið og bjó mig undir djúsi áhorf á hinn sænska Wallender.......heyrðist ógnarskræk að neðan ( ekki úr hinu neðra með stóru N-i heldur neðri hæðinni hjá okkur ) HAMSTRARNIR !!!  E-hver hafði verið að dúllast í hömstrunum sínum fyrr um kveldið og gleymt að loka búrinu.  Úbbs....Wallander fékk að bíða ( setti bara á upptöku) og hina mikla leit hófst.  Það fór sem sem ekki á milli mála hvurt þeir hefðu farið, undir stiganum er geymt gamalt barnarúm og dýna.  Merkilegt hvað hamstrar eru röskir við niðurrif á einni dýnu.  Þegar búið var að draga barnarúmið fram, henda leyfunum af dýnunni út ( ok..smá ýkjur) þá spratt fram hamstur.....einn hamstur.  Það var eins og hann væri heimtur úr helju, gleðin var svo mikil.  En hann hefur örugglega skemmt sér konunglega við að tæta í sig dýnuna.  En hinn var ófundinn.  Leitað var í öllum herbergjum, skápum og skúmaskotum ( og ég komst að því að ég þarf að fara í jólarykhreinsun) en enginn hamstur.  Þá var það þvottahúsið..og geymslan.  Dóttirin var viss um að hafa heyrt tíst inn í geymslu.  Við eigum litla geymslu með miklu dóti, mjög gaman og gefandi að leita þar að hamstri !!!  Sá svo sem fyrir mér að ef hann fyndist ekki fljótlega þá gæti ég hent öllu dótinu í geymslunni,- það yrði komið í frumeindir eftir hamstratennurnar ógurlegu.  Enginn hamstur fannst og tárin flæddu hjá stubbunni minni.  Lúkas gerðist spæjari og setti hamstramat hist og her svona til að lokka hann fram.  Enginn árangur.  Þannig að við ákváðum að fara bara í bólið og leyfa blessuðum hamstrinum að rústa geymslunni, ætluðum reyndar að setja 4 matarkorn í hvurt herbergi og loka öllum hurðum, þannig gætum við amk fundið út í hvaða herbergi hann héldi sig.  Mér stóð samt ekki alveg á saman, langaði ekki mikið að vakna um miðja nótt við hamstranag í hárinu !!! Fór inn á baðherbergi að tannbursta og þrífa fésið.....sat ekki lítill sætur hamstur þar á gólfinu,- og skildi ekkert í gleðilátunum í okkur.

 

En það er á hreinu að ef þeir losna úr búrinu í þriðja sinn ( þetta var nefnilega annað) þá verður auglýst hér gefins fínt hamstrabúr og kannske hamstrar ( ef þeir þá finnast ) !!!

 

 


Þöggun ?

Hvað er að gerast hérlendis í dag?  Í gær voru allir fréttamiðlar uppfullir af fréttum af orðum Davíðs og viðbrögum við þeim hjá pólitíkusunum. Núna seinnipartinn í dag er ekki múkk um þetta mál,- ekki á mbl,-vísi eða ruv.  Ekkert hefur heyrst frá leiðtoga Samfylkingar en Össur var e-hvað að gapa í Fréttablaðinu í morgun.  Ég bara spyr, hvað er að gerast ?   Þetta hlýtur að vera lognið á undan storminum,- Davíð rekinn,- eða/ og stjórnarslit.  Ef ekki þá er næstum örugglega von á stormi í mótmælum á morgun.  Mér finnst þessi þöggun í dag slá öllu við !!!

Upplýsingaflæði hvað?

istockphoto_428882_sealed_lips


Í fylgd lífvarða og lögreglu !!

Þetta er náttúrulega enn eitt dæmið um einræði Davíðs á Íslandi.  Hann hinn mikli höfðingi kemur í fylgd lífvarða og lögreglu til viðskiptanefndar....og segir þeim ekki baun í bala.  Hann ræður.  Og um þessa meintu endurkomu Davíðs í pólitíkina hef ég bara eitt að segja.....hann getur ekki komið aftur,- þar sem hann hefur í raun aldrei farið.

Einveldið Ísland í hnotskurn !!


mbl.is Miserfitt að hætta í pólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Horfði á mjög athyglisvert...

...viðtal í Kastljósi áðan.  Hafnfirðingur ( er e-hvað að marka þá ?) var að fara yfir það hversu mikið fólk í raun tapaði á því að halda áfram að borga af húsnæðislánunum sínum.  Það myndi margborga sig að hætta að borga af þeim og leggja inn á bók afborganirnar og nýta það síðan þegar uppboðsferli fer í gang. Veit svosem ekki hvort,- né hversu mikið húsið mitt lækkar í verði,- og þarf svo sannarlega að reikna út hversu hátt lánið verður þegar verðbólgan leggst við og við og við og við.....

reikna á morgun !!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband