punkteruð....
28.6.2009 | 22:54
Alveg punkteruð eftir langa helgi. Virkilega gaman en drulluþreytt. Á fimmtudagskveldið fékk ég frábæra nætur og matargesti,- hreindýr og humar var sett á veisluborðið og etið og spjallað. Á föstudeginum fór ég síðan á Blönduós með börnin,- heitt bað og næs,- og síðan var ekið þvert yfir Þverárfjall ( ha, ha, ha) eldsnemma á laugardag og Kolfreyju fylgt eftir á fótboltamóti á Króknum. Á milli leikja dinglaði ég um á lummudögum á Króknum, fór á minjasafnið ( alveg frábært) og síðan var útimarkaður og ég veit ekki hvað. Yfirgaf Kolfreyju fyrir kveldmat ( liðin gistu altsvo saman) og brunaði á Blönduós í grill hjá tengdó,- heimsókn til Immu ömmu, Evu+Kára, Auu og Kobba og aftur heitt bað ;) ( bara þetta kveld væri nú alveg nóg í þrekið ekki satt ). Brunað enn og aftur þvert til Króksins í býtið í morgun og Kolfreyju fylgt eftir í súru og sætu ( 3 töp, 1 jafnt, 2 sigrar). Elskuleg tengdamóðir mín kom síðan með Lúkas yfir fjallið svo ég þyrfti ekki að krossa það eina ferð enn seinnipartinn í dag. Heim....heim...heim....í grill til góðra vina í bústað og nú er það barasta beint í ból.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.