Í alvörunni komin heim !!
6.10.2008 | 20:42
Er núna komin heim í alvörunni,- var það ekki í síðustu færslu heldur var þá komin heim til Siggu frænkusystur í Köben ( en að koma til hennar er náttúrulega eins og að koma heim ). Við Kolfreyja fórum semsagt í síðustu viku til Köben,- ég beint áfram til Gdansk en Kolfreyja var eftir hjá Siggu og hennar slekti ( sem er nú ekki af verri endanum). Ég hitti kollega mína frá Póllandi og Noregi og byggði upp fín tengslanet og gat verslað aðeins í HM- áður en gengið á slotsinu fór til........
Kom semsagt til Köben á laugardaginn og ótrúlegt en satt,- fór með Kolfreyju og Siggu og öllu hennar slekti á rölt niður allt Strik og við fórum ekki inn í eina einustu búð ( Jón keypti sér reyndar vatn og lestarkort ). Mér finnst það segja allt sem segja þarf um ástandið þegar við Sigga göngum kokhraustar fram hjá öllum búðum ( og þær voru opnar !!). En auðvitað gengum við ekki fram hjá kaffíhúsapöbb, 3 öl, 3 bollar heitt súkkulaði og 3 múffur = sexþúsundkall !!!!
Síðan tók Geiri minn á móti mér með miklum ræðuhöldum þegar ég lenti í Kef kl. 16 !!
Flugrútan í innanlandsflugið og komin heim í Eyjafjörðinn. Kolfreyju hafði ekki orðið misdægurt í öllu ferðalaginu ( þrátt fyrir bílveikistendenda) en ældi eins og múkkarnir í Andey á flugbrautina hér fyrir norðan. Beint fyrir framan nefið á Fokker.
Athugasemdir
Já þá er það nú orðið slæmt ef mín fer fram og til baka á Strikinu án þess að kíkja í búð....og ekki einu sinni skóbúð, en gott að þú slepptir ekki kaffihúsunum og enn betra að þú ert komin heim.
Dugleg hún Kolfreyja það er á hreinu.
Jóhanna Kr. Hauksd (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 23:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.