Hahhhh...
18.9.2008 | 20:24
Lúkas gólaði á mig áðan og benti mér á að horfa á Rachel Ray svona aðeins. Tilefnið,- jú þar var kona sem átti vel yfir ÞRJÚHUNDRUÐ skópör. Maður hennar og sonur höfðu varla nokkuð skápapláss á heimilinu. Ég held að Lúkas hafi verið ansi hissa að einhver ætti fleiri skópör en mamma hans ( mér finnst þau alls ekki mörg). Skrambinn að videóið var ekki tengt ( eða að ég ætti græju eins og Steinvör systir) og ég gat ekki tekið þetta upp.....
.......svona til að deila með ektamakanum þegar hann kemur í land næst ;)
Ég væri alveg til í að eiga þessa í skóskápnum mínum ;)
Athugasemdir
Ertu skósjúk? Ég hélt að þú gengir bara í "skynsömum"skóm. Langar þig þá ekki líka í skóna hennar öskubusku? Þú yrðir alveg rosalega flott í svona bleikum skóm.!!Þeir eru MJÖG Helgulegir eða þannig. kv Guðný sys. PS.Hvenær verður skógurinn grisjaður?
Guðný sys (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 23:25
Værir þú til í að eiga þá í skápnum en værir þú til í að ganga í þeim??? Ég held að liturinn freysti þín frekar en skórnir sjálfir :-)
Jóhanna Kr. Hauksd (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 08:27
Það fást geðveikislega flottir skór í Póllandi : )
Guðrún Vala Elísdóttir, 19.9.2008 kl. 09:56
Og eru þeir á þokkalegum prís í Póllandi? Guðrún,- í gengisfarinu núna....
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 19.9.2008 kl. 12:59
prís, hver spáir í svoleiðis þegar skór eru annars vegar?
Guðrún Vala Elísdóttir, 19.9.2008 kl. 22:49
Jarðbundin skólastýra á norðurlandinu ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 20.9.2008 kl. 10:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.